is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19822

Titill: 
  • Vörumerki í golfi. Ímynd Tour Edge á Íslandi
  • Titill er á ensku Brands in Golf. The image of Tour Edge in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar var að skoða markaðshlutdeild golfbúnaðar íslenskra kylfinga eftir vörumerkjum. Markaðshlutdeildin var skoðuð með því að kanna hvað hefur áhrif á val þeirra sem kaupa golfsett, ásamt því að skoða þá þætti sem mestu máli skipta við uppbyggingu vörumerkis, hvernig best er að auka vitund á því, og áhuga viðskiptavina á vörumerkinu. Megin markmiðið var að kanna, með megindlegri rannsókn, ímynd og markaðshlutdeild vörumerkisins Tour Edge með samanburði við markaðshlutdeild annarra vinsælla vörumerkja á íslenskum golfvörumarkaði. Rannsókninni var ætlað að finna svör við rannsóknarspurningum, sem settar voru fram í ritgerðinni.
    Golfið á Íslandi er í stöðugri framför sem sést best á því að geta og hæfileikar íslenskra kylfinga hefur aukist til mikilla muna frá því sem áður var og mun fleiri íslenskir kylfingar reyna við atvinnumennskuna. Golfbúnaður hefur tekið töluverðum framförum og er allur orðin miklu betri, ásamt því að tæknin hefur þróast. Framleiðendur og söluaðilar bjóða kylfingum upp á mælingar þar sem sveifla kylfingins er skoðuð, sveifluhraði er mældur og út frá því er fundið út hvaða golfsett hentar hverjum og einum.
    Rannsókn höfundar byggði á spurningalistakönnun, sem lögð var fyrir golfiðkendur, og þeir voru beðnir að taka þátt í rannsókninni. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 741 og þar af voru karlar 557, konur 174 og 10 merktu ekki við spurninguna um kyn. Flestir þátttakendur voru á aldrinum 50-59 ára.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að ímynd Tour Edge er frekar takmörkuð, markaðhlutdeild vörumerkisins er lítil og eingöngu tveir þátttakendur notuðu Tour Edge. Vörumerkin PING og Titleist voru með bestu ímyndina og markaðshlutdeildina, en vörumerki eins og Callaway og TaylorMade voru einnig með góða markaðshlutdeild. Niðurstöður sýndu einnig að flestir kvenkyns þátttakendur notuðu PING og Callaway og flestir karlkyns þátttakendur notuðu PING og TaylorMade.

Samþykkt: 
  • 19.9.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19822


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Guðjón_G_Daníelsson_BS.pdf3.15 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna