is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20155

Titill: 
  • Kennslumyndbönd í sundi: tækniæfingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eins og heiti þessarar ritgerðar gefur til kynna fjallar hún um sundíþróttina og ekki síður kennsluefni fyrir sundiðkendur og sundkennara eða sundþjálfara. Sund er mjög tæknileg íþrótt og reynslan hefur kennt okkur að til þess að bæta frammistöðu í sundi skilar mestum árangri að bæta tæknilega framkvæmd þess. Sundíþróttin hefur verið frekar mikið vísindalega rannsökuð og þá hefur einnig lífeðlisfræðilegur grunnur upplýsinga nýst við þróun hennar. Út frá öllum þeim upplýsingum sem liggja fyrir hafa verið þróuð æfingakerfi, framkvæmd sundaðferða mótaðar og fjöldi tækniæfinga hannaðar til að bæta frammistöðu. Tækniæfing hefur þann tilgang að einangra ákveðið atriði. Tækniæfing er hönnuð til að hafa áhrif á atriði sem vænlegt er að breyta til að bæta frammistöðu. Í þessu lokaverkefni voru gerð kennslumyndbönd sem sýna tækniæfingar í sundi. Verkefnið skiptist í tvo hluta, annars vegar fræðilegan hluta og hins vegar kennslumyndbönd. Í fræðilegum hluta verkefnisins eru undirstöðuatriðum sunds gerð skil. Helstu undirstöðuatriði eru kraftar sem verka á líkamann í vatni og hvernig dregið er úr áhrifum þeirra á líkamann. Annað meginatriði er knúningskraftsvinna sem unnin er til að knýja líkamann áfram. Mikilvægt er að finna jafnvægi milli þessara þátta til að synda sem hraðast. Skilningur þjálfara og iðkenda getur skipt miklu máli þegar kemur að því að framkvæma tækniæfingar og þar spilar fræðsla stórt hlutverk. Myndefni er áhrifarík leið til að koma fræðslu til skila. Kennslumyndböndin sem gerð voru þessu verkefni, sýna framkvæmd æfinganna ásamt munnlegri lýsingu á framkvæmd, áherslum og tilgangi æfinganna. Myndböndin gera tækniæfingum góð skil á fræðilegan hátt. Myndböndin voru unnin í samvinnu við Háskólann í Reykjavík og koma til með að vera notuð sem kennsluefni í áföngunum Sundi I og Sundi II á íþróttafræðisviði tækni- og verkfræðideildar.

Samþykkt: 
  • 11.12.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20155


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ForsidaHJ14.pdf39.83 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
LokaverkefniHJ14.pdf1.17 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna