is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2030

Titill: 
  • Sýn forstöðumanna félagsmiðstöðva og unglinga í sérdeild á eiginleika og gildi félagslegrar virkni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á sýn forstöðumanna félagsmiðstöðva og unglinga í sérdeild á eiginleika og gildi félagslegrar virkni.
    Um er að ræða eigindlega rannsókn sem gerð var í tveimur skólum á
    Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þátttakendur í rannsókninni voru forstöðumenn í félagsmiðstöðvum skólanna og nemendur í sérdeildum þeirra. Gögnum var safnað með opnum einstaklingsviðtölum og viðtölum við rýnihópa. Viðtölin voru hljóðrituð og síðan afrituð frá orði til orðs. Úrvinnsla gagna fólst í því að greina og túlka inntak viðtalanna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós fjögur meginþemu. Tvö þeirra snúa að starfsemi félagsmiðstöðvanna. Þau eru: „að vera miðsvæðis og í takt við unglingana“ og „að vera í sambandi og vita hvað er í gangi“. Þriðja og fjórða þemað endurspegla reynslu nemendanna af þátttöku þeirra í félagsstarfi í skólunum. Þau eru: „að eiga heima í hópnum“ og „að finna sig í einhverju og njóta sín“.
    Fyrsta þemað „að vera miðsvæðis og í takt við unglingana“ sýnir hvað staðsetning félagsmiðstöðvarinnar er mikilvæg og gildi þess að starfsfólk hennar nái til nemenda í sérdeild. Annað þemað „að vera í sambandi og vita hvað er í gangi“ gengur út á samvinnu allra sem koma að unglingunum. Þriðja þemað „að eiga heima í hópnum“ fjallar um samskipti fatlaðra og ófatlaðra unglinga og mikilvægi þess að vera viðurkenndur í félagsumhverfinu. Fjórða þemað ,,að finna sig í einhverju og njóta sín“ endurspeglar síðan nauðsyn þess að hafa eitthvað fyrir stafni í frítímanum.
    Þessar niðurstöður varpa ljósi á félagslega þátttöku nemenda með þroskahömlun innan skólakerfisins og gefa vísbendingar um hvernig megi þróa starf á þessum vettvangi enn frekar.
    Lykilorð: Félagsleg virkni, unglingar í sérdeild.

Athugasemdir: 
  • Þroskaþjálfafræði
Samþykkt: 
  • 26.11.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2030


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sýn forstöðumanna félagsmiðstöðva og unglinga í sérdeild á eiginleika og gildi félagslegrar virkni - Forsida.pdf45.96 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Sýn forstöðumanna félagsmiðstöðva og unglinga í sérdeild á eiginleika og gildi félagslegrar virkni - Efnisyfirlit.pdf62.07 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Sýn forstöðumanna félagsmiðstöðva og unglinga í sérdeild á eiginleika og gildi félagslegrar virkni - Meginmal.pdf375.15 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna