Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2036
Í þessu lokaverkfni var gert ABC hreyfifærnipróf á leikskólabörnum. Börnin
komu frá þrem leikskólum, tveir úr Hafnarfirði og einn úr Reykkjavík. Alls tóku 29 börn
þátt, þar af voru 15 strákar og 14 stelpur. ABC- hreyfiprófið er próf til að kanna
hreyfifærni barna á aldrinum 4-12 ára. Börnunum er skipt niður eftir aldri, þ.e. 4-6 ára,
7-8 ára, 9-10 ára og 11-12 ára. Æfingarnar eru 8 talsins og er þeim skipt niður á þrjú svið
og eru miserfiðar. Æfingunum er skipt niður í þrjár æfingar sem prófa fínhreyfingar, þrjár
sem prófa jafnvægi og tvær sem prófa boltafærni. Prófið tekur um 20-30 mínútur á hvert
barn, það fer m.a. eftir því hversu barnið er gamalt, hversu samvinnuþýtt það er og áhuga
þess. Markverðustu niðurstöðurnar sýndu að ekki var marktækur munur á milli
heildarmeðaltals leikskólanna. Stelpurnar komu betur út úr prófinu en strákarnir og börn
fædd seinni hluta árs (júlí-desember) stóðu sig betur en börn fædd fyrrihluta árs (janúarjúní).
Lykilorð: ABC-hreyfifærnipróf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hreyfifærni barna.pdf | 3.56 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |