is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2050

Titill: 
  • Stjórnarskrárfesta og stjórnarskrárbreytingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á liðnum tveimur öldum hefur hin skjalfesta stjórnarskrá orðið eitt helsta einkenni nútímaríkisins. Í því felst að stjórnskipunin byggi á mannréttindum, aðgreiningu valdaþátta hins lýðræðislega réttarríkis, hugmyndum réttarríkisins og öðrum grundvallarþáttum sem telja verður til undirstöðuatriða hins frjálslynda lýðræðisríkis. Tilkoma hinnar skjalfestu stjórnarkrár hefur orðið til þess að stjórnvöld búa við ákveðna forskrift um aðhald sem þau skuldbinda sig til að fara eftir. Þannig hefur verið leitast við að tryggja stjórnskipulega bindingu valdastofnana ríkisins, réttaröryggi og mannréttindi. Hugtakið sem lýsir þessum hugmyndum er á ensku constitutionalism en hefur fengið þýðinguna stjórnarskrárfesta á íslensku. Í þessari ritgerð er hugtakið útskýrt og grunngerð þess skoðuð. Fjallað er um réttarríkið, skiptingu ríkisvaldsins, uppruna þess og lögmæti. Stjórnarskrárfesta í stofnunum alþjóðasamfélagsins er til umfjöllunar, þar sem hugtakinu eru gerð skil með tilliti til þjóðaréttar, alþjóðastofnana og mannréttinda.
    Í lokin eru helstu álitamál nefnd sem taka þarf til skoðunar við endurskoðun Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og þá sér í lagi með það í huga að hún uppfylli betur kröfur stjórnarskrárfestunar. Til að kanna hvort slík breyting sé aðkallandi eða nauðsynleg, er núverandi stjórnskipun íslenska ríkisins lýst og þeir þættir dregnir fram sem taldir eru undirstaða hennar. Niðurstaða þessarar athugunar er sú að Stjórnarskrá lýðveldisins þarfnist heilstæðrar endurskoðunar og að hana megi færa nær nútímalegri stjórnarskrám.

Samþykkt: 
  • 2.2.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2050


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritgerðagust.pdf336.93 kBOpinnStjórnarskrárfesta og stjórnarskrárbreytingar - heildPDFSkoða/Opna