is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > Meistaraprófsritgerðir - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20714

Titill: 
  • Rýnt í skipulagseinkenni þéttbýlisstaða í fjörðum á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Borgarformfræði leitast eftir að skoða þróun og vöxt skipulaga. M.R.G. Conzen lagði áherslu á að rýna í borgarformin og byggðarmynstrin ásamt sögulegri þróun til á átta sig á skipulagseinkennum. Caniggia rýndi í leiðandi byggingarstíla til að finna ráðandi formgerð hvers tíma. Hann setti byggingar og form þeirra í sögulegt samhengi sem mynduðu hlekki í tungumáli byggingararfleifðar. Sigríður Kristjánsdóttir beitti aðferðum borgarformfræði og skoðaði vaxtarskeið og ráðandi formgerð í Reykjavík. Hún fléttaði saman aðferðir Conzen og Caniggia til að greina borgarformin í Reykjavík. Hluti af rannsóknaraðferð hennar var endurtekin á þrem öðrum þéttbýlisstöðum á Íslandi.
    Þéttbýlisstaðirnir sem valdir voru, Ísafjörður í Skutulsfirði, Siglufjörður í Siglufirði og Neskaupstaður í Norðfirði, mynduðust við áþekkar aðstæður í þröngum fjörðum. Dregin eru fram vaxtarskeið, borgarform og ráðandi formgerð staðanna, hvers fyrir sig og sameiginlega, til að greina lýsandi skipulagseinkenni.
    Þéttbýlisstaðir byggjast svipað upp á Íslandi en náttúran er helsti áhrifavaldur í þróun þeirra ásamt sjávarútvegi. Greiningar á þéttbýlisstöðunum bentu til samspils milli ílanga byggðarformsins og stærð undirlendis. Þéttbýlisstaðirnir þrír eiga sér mörg sameiginleg skipulagseinkenni og landslag fjarðanna er ámóta. Vaxtarskeið er þau sömu og í Reykjavík en lögun og form skipulaganna er öðruvísi þar sem landslag er þrengra og undirlendi af skornari skammti en í Reykjavík.
    Greiningar á skipulagseinkennum þéttbýlisstaða í fjörðum veita góða innsýn í þróun þéttbýlisstaða við strandlínu Íslands.

  • Útdráttur er á ensku

    The urban morphology theories search for the development of an urban growth model for a contemporary city. Theories by Caniggia and Conzen were explored by Kristjánsdóttir studying of the outward grow of the city of Reykjavik, Iceland. Now applying theories on smaller towns in Iceland, located around the coast of Iceland.
    The concept (Conzen 1960) is used to mark growth periods of smaller towns and leading- type concept (Caniggia 1970) to find changes in the build form mark new growth periods. The leading types of towns around the coastline, located in fjords are identified. Town Isafjord, Siglufjord and Neskaupstad, located in fjords around the coastline are explored and similarity found. Key concepts, common to their approaches are identified: place, built form, time and space.
    The development of smaller towns are compared to development in the city of Reykjavik. Evidence of a similarity in development around Iceland. Each leading-type in the city of Reykjavík was found in the smaller towns. urban growth development was different because of landscape around the city of Reykjavík is not the same as in Isafjord, Siglufjord and Neskaupstad. Nature, landscape and weather in Iceland controls development of urban growth, along with the fish industry.
    Urban growth and leading types in smaller towns of Iceland give useful information on the development around the coastline of Iceland.

Samþykkt: 
  • 26.3.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20714


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS_MariaGudbjorg_2015_LBHI.pdf11.82 MBOpinnPDFSkoða/Opna