Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20994
Á tímum sem þessum, hafa orðið til margar kenningar og rannsóknir, sem snúa að vörumerkjavirði vöru eða þjónustu. Ástæðan fyrir því er líklega stóraukið úrval vöru og þjónustu á neytendamarkaði. Líkamsræktarmarkaðurinn er gott dæmi um sívaxandi markað. Líkamsræktarstöðvar á Íslandi eru gríðarlega margar og fjölgar þeim enn. Höfundi fannst, þar af leiðandi, vert að kanna líkamsræktarmarkaðinn með tilliti til vörumerkjavirðis líkamsræktarstöðva hér á landi. Höfundur mun fara eftir kenningu Aakers við rannsókn á vörumerkjavirði líkamsræktarstöðvanna. Aaker skiptir vörumerkjavirði í fimm víddir, en í þessari rannsókn eiga einungis fjórar víddir við, vörumerkjatryggð, vörumerkjavitund, skynjuð gæði og hugrenningartengsl við vörumerkið.
Rannsókn þessi beinist að þremur líkamsræktarstöðvum á Íslandi, World Class, Hreyfingu og Sporthúsinu. Rannsakaðar voru undirvíddir vörumerkjavirðis og hver skýringarmáttur þeirra gagnvart vörumerkjavirði líkamsræktarsöðva er. Leitast var við að svara spurningunni: Hvaða undirvídd hefur sterkasta skýringarmáttinn gagnvart vörumerkjavirði líkamsræktarstöðva?
Notast var við megindlega rannsóknaraðferð í formi spurningakönnunar. Spurningakönnunin var send út á samfélagsmiðlinum Facebook auk þess að vinir og vandamenn áframsendu könnunina til enn fleiri einstaklinga. Alls voru 345 einstaklingar sem svöruðu könnuninni en aðeins 260 svör voru gild.
Niðurstöður sýndu fram á að víddin vörumerkjatryggð hefur mesta skýringarmáttinn gagnvart vörumerkjavirði líkamsræktarstöðvanna. Þar á eftir kemur víddin skynjuð gæði. Vörumerkjavitund og hugrenningartengsl við vörumerkið hefur ekki skýringarmátt gagnvart vörumerkjavirði líkamsræktarstöðvanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Líkamsræktarmarkaðurinn á Íslandi. Lokaskjal. Sigridur Edda.pdf | 571.09 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |