is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21014

Titill: 
  • Blóð og blek í kennslustofunni. Minning, frásögn og kennsla í ljósi stríðsáranna á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í ljósi sameiginlegra minninga um síðari heimsstyrjöldina er þjóðernisfrásögnin á Íslandi rannsökuð ásamt viðhorfi íslenskra framhaldsskólakennara í sögu. Í þessari ritgerð eru hugtökin sameiginleg minning og þjóðernisfrásögn greind út frá stríðsárunum á Íslandi og eftirmála hennar.
    Á undanförnum áratugum hefur endurskoðun átt sér stað á Norðurlöndunum en Ísland hefur staðið eftir hvað varðar umfang hennar. Um ástæður þess hafa íslenskir fræðimenn meðal annars nefnt skort á álitamálum og það að síðari heimsstyrjöldin hafi ekki passað inn í þjóðarfrásögnina.
    Í ritgerðinni eru einnig birtar niðurstöður spurningalistakönnunar sem lögð var fyrir sögukennara í íslenskum framhaldsskólum en þar kom til að mynda fram að svarendum þykir jafn mikilvægt að kenna um stríðsárin á Íslandi og hið alþjóðlega stríð. Þeir kenna þó meira um alþjóðastríðið, meðal annars vegna áhuga nemenda og lítils efnis sem stendur til boða.
    Ritgerðin er unnin í samvinnu við Árna Stefán Guðjónsson sem skrifaði meira um kennslubækur en kennsluna sjálfa.
    Niðurstöður ritgerðarinnar voru meðal annars þær að hér á landi hefur að vissu leyti ekki farið fram sú endurskoðun sem þörf er á. Tilgátur um skort á álitamálum og að þau passi ekki inn í þjóðernisfrásögnina eru vissulega góðar ábendingar en staða Íslendinga var gjörólík öðrum þjóðum. Rík ástæða er til endurskoðunar á stríðsárunum og mættu kennslubækur í framhaldsskólum fjalla um þau á mun gagnrýnni hátt en raunin er í dag.

Samþykkt: 
  • 5.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21014


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
PDF_Blóð og blek í kennslustofunni.pdf1.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
KÁPA_Blóð og blek í kennslustofunni.pdf162.27 kBOpinnKápaPDFSkoða/Opna