Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21136
Markmið þessarar ritgerðar er að skoða máltöku einstaklinga og þróun orðaforðans í hinu félagslega umhverfi. Með aukinni tækni hefur íslenska tungan óneitanlega orðið fyrir áhrifum hinna ýmsu nýmiðla. Eru nýmiðlar að hafa áhrif á málnotkun okkar og framvindu tungumálsins? Í ritgerðinni verður rýnt í sjálfsmyndarsköpun ungmenna en þátttaka Íslendinga í hinum hnattvædda heimi endurspeglast í orðræðunni um sjálfsmyndir og ímynd þjóðarinnar. Með tilkomu samskiptamiðla hafa samskipti einstaklinga breyst, sem nú fara að miklu leyti í gegnum tölvur og snjalltæki. Eru samskiptamiðlarnir að taka við af hinum hefðbundnu félagslegu samskiptum? Mun aukin netnotkun hafa áhrif á lífaldur íslenskrar tungu?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Mannabörn eru merkileg_lokaskjal_María Erla.pdf | 547.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |