is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2113

Titill: 
  • Evrópuvæðing umhverfisins. Umhverfisstefna Evrópusambandsins og tengsl hennar við Ísland í gegnum EES-samninginn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um umhverfisstefnu Evrópusambandsins og hvernig hún tengist Íslandi í gegnum EES-samninginn. Farið er yfir sögu og þróun umhverfisstefnunnar, allt frá því að hún kom fyrst fram á sjónarsviðið á áttunda áratug síðustu aldar og fram til dagsins í dag. Staða stefnunnar í dag er skoðuð, með hliðsjón af skýrslu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sjöttu aðgerðaáætlunina og mótsvari frá Evrópsku umhverfisskrifstofunni. Einnig er farið í stöðu umhverfismála innan EES-samningsins og þeir þættir umhverfisstefnu Evrópusambandsins sem að tilheyra EES-samningnum eru skoðaðir sérstaklega. Ljósi er varpað á stöðu Íslands innan umhverfisstefnunnar í ljósi hagsmuna landsins og áhrifa til ákvörðunartöku innan Evrópusambandsins og EES-samningsins. Að lokum er rætt um hvað myndi breytast innan umhverfisstefnu Íslands ef að til inngöngu í Evrópusambandið kæmi. Stuðst er við margvíslegar tegundir heimilda, helst ber að nefna fræðirit og greinar, tilvísanir og reglugerðir sem að tengjast umhverfismálum og munnlegar heimildir frá sérfræðingum á sviði evrópskra umhverfismála. Helstu niðurstöður eru þær að Ísland hefur nú þegar tekið upp stærstan hluta umhverfisstefnu Evrópusambandsins að undanskilinni náttúruvernd og dýravernd. Aftur á móti eru blikur á lofti um að áhrifum Íslands og EFTA-ríkjanna til ákvörðunartöku innan sambandsins fari minnkandi, og þar af leiðandi er mikilvægt að vera vel vakandi og tryggja stöðuga hagsmunagæslu ríkisins innan veggja EES-samningsins.

Samþykkt: 
  • 1.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2113


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Margret_Helga_Gudmundsdottir_fixed.pdf248.73 kBOpinnEvrópuvæðing umhverfisins - heildPDFSkoða/Opna