Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21217
Verkefnið fjallar um nýtingu Elliðavatns og umhverfis til útikennslu í náttúrufræðigreinum fyrir unglingastig. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar fræðileg greinagerð og hins vegar verkefnahefti með útikennsluverkefnum til að vinna að við Elliðavatn og umhverfi þess. Í greinagerðinni er farið yfir skilgreiningar á útikennslu, kenningar tengdar henni, fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á útikennslu og uppbyggingu verkefnaheftisins og tengsl þess við Aðalnámskrá grunnskóla 2013. Í verkefnaheftinu er samansafn af náttúrufræði-verkefnum sem nýta má í útikennslu á unglingstigi. Þó svo að þau miðist við Elliðavatn og umhverfi hér má yfirfæra þau á aðra staði með svipað umhverfi. Skólalóðin hefur stórt hlutverk í nokkrum verkefnanna og slíka aðstöðu má finna við alla skóla. Verkefnin voru unnin með það námsefni sem nú er kennt á unglingastigi í huga. Til þess að útikennslan sé sem best þurfa markmið kennslunnar að vera skýr og eftirfylgni góð. Gott er þá að styðjast við verkefnahefti í líkingu við það sem hér hefur verið sett upp.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerðin2015skemman.pdf | 413.88 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Verkefnaheftið2015skemman.pdf | 3.66 MB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |