is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21399

Titill: 
  • Titill er á ensku Pussy Riot: Art or Hooliganism? Changing Society through Means of Participation
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Athugun á störfum listahópsins Pussy Riot veitir skýra innsýn í hvernig listsköpun má nýta til pólitískra áhrifa. Hópurinn, sem kenndur er við pönkstefnuna, samanstendur einvörðungu af konum sem leggja áherslu á feminískar aðgerðir og nýta sér þátttökulist til vitundarvakningar meðal almennings. Markmið Pussy Riot er að veita aðgerðasinnuð inngrip í pólitíska umræðu. Hópurinn hefur tekið á sig mynd pönkhljómsveitar sem stígur á stokk í óþökk yfirvalda þar sem grímuklæddir meðlimirnir flytja atriði sín í almenningsrými. Íklæddar skærlituðum lambúshettum beina konurnar í Pussy Riot kastljósinu að raunum "hinsegin fólks" í Rússlandi, femínisma og vaxandi alræðistilburðum ríkisstjórnar Vladimir Putin. Listahópurinn notar gjörningalist til að veita ríkjandi stjórnmála- og menningarlegum hugmyndum Rússnesks nútímasamfélags mótspyrnu. Pussy Riot leitast eftir að brjóta niður hefðbundin valdamynstur og koma þar á stjórnarfarslegum breytingum í þágu lýðræðis. Í kjölfar frægasta gjörnings þeirra ”A Punk Prayer”, sem flutt var í Kirkju Frelsarans Krists árið 2012, fangelsaði lögreglan þrjá meðlimi hópsins fyrir óspektir á almannafæri. Neikvæð viðbrögð löggjafarvaldsins við uppátæki listamannanna sýndu hve áhrifaríkar aðgerðir þeirra voru í raun og veru. Atburðirnir vöktu athygli heimsbyggðarinnar og sýnir það fram á hvernig listsköpun getur á skilvirkan hátt stutt við aðgerðasinna í ríkjum sem rekin eru af alræðismiðuðum ríkisstjórnum. Með þessari ritgerð er gerð tilraun til að greina þá þátttökulist sem Pussy Riot hefur notað til að vekja athygli á hinum ýmsu málefnum. Gagnrýnin snýr að því hvort aðgerðir listahópsins hafi raunveruleg áhrif til frambúðar. Ritgerðin sýnir að á sama tíma og verk Pussy Riot hafa færst í átt að ríkjandi gildum vestrænnar menningar hefur getu þeirra til þess að hafa áhrif á félagsleg gildi verið ógnað af síaukinni áherslu á efnisleg gildi.

  • Útdráttur er á ensku

    The art collective Pussy Riot offers an interesting case study on the possibilities of art for political influence. The feminist punk-art group employs participatory public engagement as a means for raising public awareness. Their objective is to carry out political intervention through established means of performance activism. The all-female collective has acquired the form of a punk band, which performs unsanctioned and anonymously on the public space. The performers dressed in bright balaclavas address current issues of LGBQT rights, feminism and the growing authoritarianism of the Putin regime. Through the act of performative interfering, Pussy Riot aims to enrich the political and cultural opposition in contemporary Russia. Their objective is to challenge the governing power structures and implement political change for the sake of a democratic society. After their famous performance in the Cathedral of Christ the Savior in 2012, three of the collective’s members were sentenced to prison for hooliganism. The antagonistic reaction from the authorities serves to validate the effectiveness of the public intervention. The international attention sparked by the controversy demonstrates the capability of art to inaugurate and support political activism in authoritarian societies. The objective of this essay is to analyze the artistic participation employed by Pussy Riot as a method for successful public intervention. The question of whether the collective’s actions can be seen as futile or productive for future developments can be regarded as central to the critical assessment of their work. As Pussy Riot have become merged into the mainstream culture, their capability to antagonize social relations is threatened by the increasing emphasis on material relations.

Samþykkt: 
  • 11.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21399


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BACamillaReuter.pdf732.23 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna