Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21457
Í kjarasamningum milli sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara sem gerðir voru 2001 var sett inn bókun sem gerði það mögulegt að skólar gætu tekið upp breytt vinnutímafyrirkomulag frá því sem almennt gerist í grunnskólum hér á landi.
Í þessari rannsókn var markmiðið að skoða reynslu þeirra sem starfað hafa í grunnskólum sem tekið hafa upp vinnutímafyrirkomulag samkvæmt bókun 5 og síðar grein 2.1.6.3 í kjarasamningi grunnskólakennara. Í rannsókninni er notuð blönduð rannsóknaraðferð.
Í eigindlega hluta rannsóknarinnar þar sem tekin voru hálfopin viðtöl var spurt hver reynsla stjórnenda í skólum sem útfæra vinnutíma grunnskólakennara samkvæmt ákvæði 2.1.6.3 (bókun 5) væri. Í megindlega hluta rannsóknarinnar var lagður spurningalisti fyrir kennara þessara sömu skóla. Annars vegar var spurt um hvaða áhrif vinnufyrirkomulagið hefði á innra starf skólans og hins vegar um viðhorf kennara skólanna til vinnufyrirkomulagsins.
Helstu niðurstöður eru þær að stjórnendur telja þetta fyrirkomulag hafa ótvíræðan ávinning í för með sér fyrir alla hagsmunaaðila sem koma að skólastarfinu. Þeir eru sammála um að þessi útfærsla á vinnutíma kennara stuðli að betra skólastarfi. Í spurningakönnun sem lögð var fyrir kennara skólanna kom fram að þeir eru sáttir við að vinna eftir þessu vinnutímafyrirkomulagi og telja að það hafi jákvæð áhrif á innra starf skólanna sem skili sér í betra skólastarfi.
Þeir skólar sem farið hafa út í að vinna samkvæmt breyttu vinnutímafyrirkomulagi hafa þurft að yfirstíga ýmsar hindranir ekki síst vegna andstöðu Félags grunnskólakennara við að þessi leið sé farin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Það sem hentar skólanum best.pdf | 1.01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |