is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21535

Titill: 
  • Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu HEXACO-60 persónuleikaprófsins
  • Titill er á ensku The psychometric properties of the Icelandic HEXACO-60 personality questionnaire
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu HEXACO-60 prófsins (HEXACO-60-IS) voru athugaðir. Þátttakendur rannsóknarinnar voru samtals 671 á aldrinum 16 til 75 ára. Meðalskor og staðalfrávik yfirþáttanna voru svipuð og í ensku útgáfu prófsins ásamt því að marktækur munur var á skorum karla og kvenna. Þáttabygging prófsins var skýr og innri áreiðanleiki þáttanna var góður. Þá var fylgni á milli yfirþátta HEXACO-60-IS einnig ásættanleg. Reiknuð var fylgni HEXACO-60-IS við Lífsafstöðuprófið, PANAS-IS og Lífsánægjukvarðann, aðallega til þess að athuga samleitni- og aðgreiniréttmæti yfirþáttanna úthverfu og tilfinningasemi.Fylgni þáttanna við skyldar hugsmíðar kvarðanna þriggja var ágæt þó fylgni tilfinningasemi hafi verið aðeins lægri en fyrir úthverfu. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda því til þess að þáttabygging og áreiðanleiki yfirþátta HEXACO-60-IS séu í samræmi við erlenda gerð þess en frekari rannsókna er þörf til að kanna samleitni- og aðgreinréttmæti yfirþátta prófsins.

Samþykkt: 
  • 16.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21535


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Rakel_lokaskil_2015.pdf825.77 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Lokakapa_bs.pdf163.21 kBOpinnKápaPDFSkoða/Opna