Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21663
Eins og nafn ritgerðarinnar bendir til er drekabanaminnið útgangspunktur þessarar rannsóknar, en hugmyndin var sú að bera saman drekabana fortíðar og einn helsta drekabana nútímans; Batman. Markmiðið ritgerðarinnar er að athuga sameiginleg einkenni þeirra, minni og samfélagsleg skilaboð.
Ritgerðinni er skipt upp í þrjá hluta; fyrst er rannsóknarsaga þjóðsagnafræðinnar rakin, helstu fræðimenn hennar taldir upp og kenningar þeirra skýrðar. Þar á eftir eru uppruni og einkenni drekans rakin af bestu getu og Bjólfskviða, saga Sigurðar Fáfnisbana og Batman-sögurnar skoðaðar og bornar saman.
Í lokin eru helstu atriði tekin saman og hefur rannsóknin leitt í ljós að þessar ólíku hetjur eiga það sameiginlegt að vera ungir að árum, einskonar óttalausir utangarðsmenn sem búa yfir ofurmannlegum eiginleikum og sigrast á andstæðingum sínum með bestu tækni mannsins á hverjum tíma. Drekinn er svo aftur á móti tákngervingur ótta mannsins við ringulreið og óstýriláta náttúruna, í hvaða mynd sem hún birtist. Með sigri á drekanum er röð og regla heimsins endurheimt og verðlaun hetjunnar eru meðal annars virðing og aðdáun samfélagsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA Theodór LOKA.pdf | 621.3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |