is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Kandídatsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21697

Titill: 
  • Tengsl tilfinningastjórnar við kvíðaeinkenni leikskólabarna
Útdráttur: 
  • Kvíði getur haft djúpstæð áhrif á líf barna. Sífellt er þörf á betri skilning á þróun kvíða og þeirra áhættuþátta sem koma fram hjá börnum. Sífellt fleiri rannsóknir á kvíða barna sýna tengsl við tilfinningastjórn (e. emotion regulation). Markmið þessarar rannsóknar var að athuga tengsl tilfinningastjórnar við kvíða hjá börnum á leikskólaaldri. Erlendar rannsóknir hafa sýnt tengsl þar á milli meðal grunnskólabarna. Því var gert ráð fyrir að slík tengsl gætu verið til staðar meðal íslenskra leikskólabarna. Þátttakendur í rannsókninni voru foreldrar 79 barna á sjötta aldursári. Þau komu frá höfuðborgarsvæðinu og Akureyri og notast var við foreldramat. Könnuð var fylgni milli ERC spurningalistans sem metur einkenni tilfinningastjórnar og óstöðugeika/neikvæðni og þriggja annarra lista; PAS-R sem metur einkenni kvíða, BIQ sem metur einkenni ofurvarkárni og SDQ sem metur ofvirknieinkenni, hegðunar- félags- og tilfinningavanda, en aðeins var notast við þann hluta listans sem metur tilfinningavanda. Niðurstöður sýndu að tilfinningastjórn hefur neikvæða fylgni við kvíða en tilfinningastjórn spáði aðeins fyrir um 15% heildareinkenna kvíða. Tilfinningastjórn hefur jákvæða fylgni við ofurvarkárni en spáði aðeins fyrir 6% heildareinkenna ofurvarkárni. Kynjamunur var kannaður og aðeins fannst marktæk fylgni við einn undirþátt ofurvarkárnikvarðans, líkamlegar áskoranir.
    Lykilorð: Tilfinningastjórn, kvíði, ofurvarkárni, kynjamunur, leikskólabörn.

  • Útdráttur er á ensku

    Anxiety can have a profound impact on the lives of children. There is an increasing need for a better understanding of the development of anxiety and the associated risk factors. The aim of this study was to examine the relationship between emotion regulation and anxiety in children of preschool age. Since studies have shown a correlation between the two among primary school children the assumption was that it could also be found among preschoolers. Participants in the study were parents of 79 five-year-old children. The parents resided in Reykjavík metropolitan area and in Akureyri. The assessment format was parent evaluation. Correlation between the ERC questionnaire, which assesses emotion regulation and lability/negativity; and three other questionnaires was examined. They were PAS-R which evaluates symptoms of anxiety, BIQ which assesses symptoms of behavioral inhibition; and SDQ which assesses ADHD symptoms, along with behavioral, social, and emotional symptoms. The study limited the use of SDQ questionnaire to only include the emotional symptoms scale. The results showed that emotion regulation has a negative correlation with anxiety and predicted only about 15% of overall anxiety symptoms. Emotion regulation has a positive correlation with behavioral inhibition, but predicted only about 6% of overall inhibition symptoms. Gender differences were explored but the only significant correlation found was in one of the behavioral inhibition scale’s sub-categories, physical challenges.
    Key words: emotion regulation, anxiety, behavioral inhibition, gender differences, preschool children.

Samþykkt: 
  • 28.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21697


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LOKARITGERÐ_SKEMMAN_ Fanný Rut Meldal.pdf1.16 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna