is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/216

Titill: 
  • Myndsköpun og frásagnir barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um barnateikningar og tjáningarferli sem börn á leikskólaaldri sýna í teikningum sínum og frásögnum. Fjallað er um kenningar nokkurra fræðimanna sem rannsakað hafa teikningar, myndsköpun og tjáningarform barna. Myndir barnanna og þeirra frásagnir voru greindar eftir kenningum og hugmyndafræðum John Dewey, Lowenfeld og Brittain, Rhoda Kellogg, Fjölgreindarkenningu Howard Gardner og hugmyndafræði Reggio Emilia. Tjáning barnsins er stór þáttur í leikskólastarfi og er skoðað hvernig hún endurspeglast í gegnum teikningar og mál barnanna. Athuganir voru gerðar á sex börnum í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Viðtal var tekið við deildarstjórann á deild barnanna til að fá sýn hans á teikningar barna og hvernig unnið er með þær í leikskólanum. Niðurstöður í þessari athugun eru í flestum tilfellum að börnin teiknuðu reynslu sína og það sem stóð þeim næst. Þau höfðu einnig þörf fyrir að deila reynslu sinni og því eru myndir og frásagnir góður vettvangur til að koma reynslu og þekkingu barnanna á framfæri. Þessvegna finnst okkur mikilvægt að ýta undir þennan námsþátt í leikskólanum.

Samþykkt: 
  • 19.6.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/216


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Myndsk - heild.pdf2.47 MBLokaðurHeildPDF