Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2170
Samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 hvílir sérstök skylda á þeim er vinna með börnum eða afskipti hafa af málefnum barna að tilkynna til barnaverndarnefnda, ef grunur vaknar að barn búi við óviðundandi uppeldisskilyrði. Því kemur sú staðreynd á óvart hversu fáar tilkynningar koma frá leikskólum til barnaverndarnefnda.
Markmið rannsóknar sem undirrituð gerði meðal leikskólastarfsmanna var að kanna hvort nánd foreldra og barna við starfsfólk leikskóla hefði áhrif á lága tíðni tilkynninga til barnaverndarnefnda. Reynsla á samstarfi leikskóla við barnaverndarnefndir var líka könnuð. Ákveðið var að leita til þriggja leikskóla sem allir voru staðsettir í mismunandi borgarhlutum til að kanna hvort munur væri á svörum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð við upplýsingaöflun. Tekin voru viðtöl við sex leikskólastarfsmenn þrír þeirra eru leikskólastjóra og þrír leikskólakennarar. Þátttakendur rannsóknarinnar voru allt konur, meðalstarfsaldur þeirra var 13,6 ár.
Rannsóknin leiddi í ljós að nánd foreldra og barna við starfsfólk leikskóla hefur áhrif á lága tíðni tilkynninga til barnaverndarnefnda. Reynsla á samstarfi við barnaverndarnefndir var yfirleitt neikvæð, ekki var munur á svörum eftir staðsetningu leikskólans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hildur_lokaritger.pdf | 280.49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |