is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21710

Titill: 
  • Möl og sandur. Auðlindanámur í sjó við Ísland og erlendis.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Möl og sandur eru gríðarlega mikilvæg hráefni í nútímasamfélagi. Helstu not fyrir þessi hráefni eru íblöndunarefni í steinsteypu, en einnig eru þau notuð í malbiksgerð, glerframleiðslu og landfyllingar. Þar sem möl og sandur eru ekki sjálfbærar auðlindir er vert að skoða neysluna á þeim og stjórna henni á sem sjálfbærastan hátt. Námi þessara auðlinda er vel stjórnað í flestum Evrópuríkjum en ekki er hægt að segja það sama um þróunarlöndin. Nám á möl og sandi hefur færst mikið frá þurru landi og til náma á hafsbotni. Þar sem mikil eftirspurn er eftir möl og sandi hafa sum lönd bannað útflutning á þeim og því hefur myndast svartur markaður um sölu þessara efna. Þó svo að námi á þessum auðlindum sé vel stjórnað þá eru umhverfisáhrifin töluverð, þá sérstaklega ef að eftirlit er ekki nægilega gott. Þörf er á vitundarvakningu meðal almennings og stjórnmálamanna um þann skort á sandi sem blasir við í heiminum, skort á vísindalegum gögnum á heimsvísu og þeim umhverfisáhrifunum sem námið hefur og afleiðingar þess.

Samþykkt: 
  • 28.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21710


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Möl og sandur - Auðlindnámur í sjó við Ísland og erlendis. Jóhann Mar Ólafsson.pdf662.64 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna