Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21843
Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (school-wide positive behavior support) er hegðunarstjórnunarkerfi sem ætlað er að laða fram félagslega æskilega hegðun. Kerfið er forvarnakerfi en aðferðir þess koma í veg fyrir óæskilega hegðun og breyta henni. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða áhrif innleiðing á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun hefði á hegðun starfsmanna og barna tveggja leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að kerfið minnki óæskilega hegðun hjá nemendum í grunnskólum og bæti viðmót hjá starfsmönnum grunnskóla. Minna er til af rannsóknum sem sýna árangur kerfisins í leikskólum en með slíkum rannsóknum hefur þó verið leitt í ljós að kerfið minnkar óæskilega hegðun barna í leikskólum. Þessi rannsókn mældi áhrif heildstæðs stuðnings við jákvæða hegðun með beinu áhorfi í tveimur leikskólum. Margfalt grunnskeiðssnið var notað til að meta áhrif kerfisins. Gögnum var safnað vorið 2013 í báðum leikskólum en einnig haustið 2013, vorið 2014, haustið 2014 og vorið 2015 í öðrum þeirra (leikskóla 1) og eru niðurstöðurnar birtar hér. Helstu niðurstöður eru þær að áhrif kerfisins voru lítil sem engin í leikskóla 1.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun.pdf | 4.98 MB | Lokaður til...01.06.2025 | Heildartexti |