Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2189
Mikilvægi nýsköpunar hefur lengi verið þekkt en eiginleikar starfsmanna sem tengjast nýsköpun í starfi hafa ekki verið kannaðir hér á landi. Því voru bornir saman tveir 28 manna hópar starfsmanna íslenskra fyrirtækja hvað varðar stjórnunarhætti og eiginleika, eftir nýsköpunarvirkni fyrirtækjanna sem þeir störfuðu hjá. Hvorki fannst munur á stjórnunarstíl né eiginleikunum áhuga og vilja til áhættutöku, milli hópanna tveggja. Tengsl fundust þó milli stjórnunarstílsins nándarstýringar og áhuga annars vegar og vilja til áhættutöku hins vegar. Beiting og mikilvægi nándarstýringar, helstu gallar rannsóknarinnar og fyrirhugaðar rannsóknir eru ræddar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Arna_Frimannsdottir_fixed.pdf | 354.04 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Arna_Frimannsdottir_forsida_og_efnisyfirlit_fixed.pdf | 20.86 kB | Opinn | Forsíða og efnisyfirlit | Skoða/Opna |