Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2190
Markmið rannsóknarinnar var að gera grunnlínumælingar með beinu áhorfi til
að geta metið árangur stuðnings við jákvæða hegðun í 1. – 4. bekk í þremur
grunnskólum. Grunnlínumælingarnar voru gerðar haustið 2007 og er fyrsti hluti af 5
ára rannsóknaverkefni í grunnskólum sem stefna á innleiðingu stuðnings við jákvæða
hegðun. Hegðunarvandamál eru mjög algeng í grunnskólum og hefur vantað úrræði
fyrir alla nemendur skólanna en ekki bara þá sem eru með greiningar samkvæmt
greiningarviðmiðum geðlæknasamtaka. Stuðningur við jákvæða hegðun er hegðunarmótunarkerfi
sem byggist á hagnýtri atferlisgreiningu og nær til allra nemenda,
starfsfólks og kennara í skólum. Árangur af stuðningi við jákvæða hegðun hefur verið
metin með huglægu mati en þörf er á frekari rannsóknum með beinum
áhorfsmælingum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að mikill munur var á
hegðun nemenda og afleiðinga hegðunar í kennslustofu og á almennum svæðum
skólanna. Einnig kom fram mikill munur á milli daga, sem er líklega hægt að rekja til
mismunandi kennara og starfsfólks í mælingum. Það var ekki virkt eftirlit í skólunum,
starfsfólk var almennt ekki sýnilegt og það var algengt að einungis væri skimað eftir
vandamálahegðun en ekki veitt góðri hegðun athygli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ingunn_Brynja_Einarsdottir_fixed.pdf | 528.34 kB | Lokaður | Meginmál | ||
Ingunn_Brynja_Einarsdottir_Forsida_fixed.pdf | 7.72 kB | Lokaður | Forsíða |