is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22437

Titill: 
  • Líkamshreysti fjögurra og fimm ára barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort munur væri á líkamshreysti fjögurra og fimm ára barna, hvort kynjamunur væri á líkamshreysti barna á aldrinum 4-5 ára og hvort kynjamunur væri á líkamshreysti barna í þessum aldursflokkum.
    Aðferð: Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn. Þátttakendur voru 124. Þeir komu allir af fjórum leikskólum í Kópavogi. Fjöldi stráka var 52 (41,9%) og fjöldi stelpna 72 (58,1%). Af þeim voru 60 (48,4%) þátttakendur í 4 ára hópnum og 64 (51,6%) þátttakendur í 5 ára hópnum. Þátttakendur framkvæmdu fjögur líkamshreystipróf: Langstökk án atrennu, boltakast með 1 kg þyngingarbolta, 20 metra spretthlaup og sex mínútna hlaup. Við úrvinnslu gagna var notað forritið SPSS og töflur voru unnar í forritinu Excel.
    Niðurstöður: Fimm ára börn sýndu marktækt betri árangur en fjögurra ára börn í öllum fjórum líkamshreystiprófunum og á heildar Z stigum. Strákar sýndu marktækt betri árangur en stelpur þegar litið var á heildarúrtakið í langstökki án atrennu, boltakasti með 1 kg þyngingarbolta, í sex mínútna hlaupi og á heildar Z stigum, en ekki í 20 metra spretthlaupi. Einnig náðu strákar marktækt betri árangri í öllum prófum og á heildar Z stigum í 4 ára hópnum en hvergi var marktækur munur milli kynja í 5 ára hópnum.
    Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að jákvæð þróun verður á líkamshreysti barna sem er líklega tilkomin vegna þeirrar þróunar sem barn tekur út. Niðurstöður komu á óvart hvað varðar mun á milli kynja í aldursflokkunum og frekari rannsókna sem skoða stærra úrtak er þörf.

Samþykkt: 
  • 18.8.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22437


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð B.Sc. - Saadia Auður Dhour.pdf1.57 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna