Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22463
Í eftirfarandi ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hvað einkennir afreksíþróttafólk út frá íþróttafélagsfræði og íþróttasálfræði. Rannsóknin var framkvæmd á tímabilinu 16. janúar til 11. maí árið 2015. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem hún var talin best til þess fallin að svara rannsóknarspurningunni. Þátttakendur í rannsókninni voru sjö en úr þeim hópi voru fimm afreksíþróttamenn og tveir sérfræðingar; annar íþróttafélagsfræðingur en hinn íþróttasálfræðingur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að ákveðnir sálfræðilegir og hugarfarslegir þættir sem hægt var að hafa áhrif á í gegnum félagsmótun einkenndu afreksíþróttafólkið. Það sem einkenndi þessa ákveðnu einstaklinga var að þau áttu öll fjölskyldu og vini sem höfðu stutt við bakið á þeim og íþróttaiðkun var merkingarbær í þeirra umhverfi. Þrátt fyrir góðan stuðning og töluverðan aga í uppeldinu fengu þau öll ákveðið frjálsræði til að velja þá íþrótt sem þeim þótti skemmtilegust. Þá höfðu þau öll haft þjálfara sem voru góðir í samskiptum, bjuggu yfir góðri fagþekkingu og náðu vel til þeirra. Einnig einkenndi gott sjálfstraust, þrautseigja, dugnaður, vinnusemi, jákvætt hugarfar og sá eiginleiki að vera sterk í mótlæti flesta þátttakendurna. Mikilvægt er að þeir sem koma að mótun íþróttamanna geri sér grein fyrir þeim áhrifum sem þeir geta haft á árangur og frammistöðu þeirra sem keppa að því að ná afreksárangri.
Lykilorð: Afreksíþróttafólk, íþróttafélagsfræði, íþróttasálfræði, félagsmótun, sálfræðilegir og hugarfarslegir þættir tengdir íþróttum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sterk í mótlæti-1.pdf | 547.4 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |