Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22466
Lokaverkefni mitt er hagnýtt verkefni sem fjallar um grunnæfingar í listhlaupi á skautum. Verkefnið skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og æfingahandbók sem inniheldur kennslumyndbönd. Í fræðilega hlutanum er meðal annars farið yfir sögu listhlaups á skautum og uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi. Í hagnýta hlutanum er æfingahandbók og kennslumyndbönd fyrir grunnæfingar í listhlaupi á skautum. Þar er farið yfir hvernig sé best að kenna grunnæfingar ásamt nokkrum hugmyndum af leikjum. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði þegar að ég tók að mér verkefni sem formaður dómara- og tækniráðs hjá Skautasambandi Íslands haustið 2014. Ég sá að það var þörf fyrir aðgengilegra kennsluefni á íslensku fyrir grunnæfingar í listhlaupi á skautum. Handbókin og kennslumyndböndin eru ætluð þjálfurum, kennurum, leiðbeinendum og foreldrum til þess að öðlast betri skilning á íþróttinni og geta kennt helstu grunnatriði í listhlaupi á skautum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ásdís Rós Clark B.Sc.-Lokaskil (1).pdf | 720.21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |