Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22506
Ritgerð þessi er til lokaverkefnis til BA-gráðu úr tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Meginmarkmið þessara ritgerðar er að skoða frístundaheimili í Reykjavík og hvernig unnið er með barnalýðræði eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á frístundaheimilum í Reykjavík.
Í ritgerð þessari er lagt upp með tvær rannsóknarspurningar; hvað barnalýðræði er og hvernig barnalýðræði nýtist í starfi með börnum innan veggja frístundaheimilanna í Reykjavík. Unnin var tilviksathugun (e. case study).
Þátttaka í skipulögðu tómstundastarfi eflir alhliða þroska barna og gerir þeim kleift að efla leik sinn innan veggja frístundaheimilanna. Með virku barnalýðræði er börnunum gefið tækifæri á að koma skoðunum sínum og hugsunum á framfæri undir handleiðslu leiðbeinanda.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að börn eru hæf til þess að taka ákvarðanir að málefnum sem snúa að þátttöku þeirra innan veggja frístundaheimilanna og að þau vilja fá að hafa áhrif á málefni sem snerta þau. Barnalýðræði er virkt á þeim frístundaheimilum sem voru rannsökuð og er barnalýðræði unnið eftir bestu vitund og þekkingu starfsmanna frístundaheimilanna.
Leitarorð: Frístundaheimili, barnalýðræði, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og þátttaka barna
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þau hafa líka rödd-BA ritgerð - Anna Björt -lokalokadrög.pdf | 857.09 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |