is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22622

Titill: 
  • Áhrif upptöku IFRS á kennitölur fyrirtækja
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar eða IFRS hafa verið að ryðja sér til rúms í heiminum og leysa af innlend lög og reikningsskilavenjur til að gera reikningsskil milli landa sambærilegri. Ísland er þar engin undantekning og hafa nokkur fyrirtæki hér á landi tekið upp IFRS. Þegar IFRS er tekið í notkun breytast matsaðferðir sem fyrirtæki hafa áður notað og þar með stærðir í reikningsskilum þeirra. Þegar áhrif IFRS á reikningsskil eru greind getur verið gott að notast við kennitölur þar sem þær draga saman helstu stærðir og leiðrétta fyrir stærðarmun ásamt því að vera notaðar af ýmsum aðilum í greiningu á fyrirtækjum. Í þessari ritgerð voru áhrif IFRS á kennitölur tíu íslenskra fyrirtækja skoðuð þar sem þær voru reiknaðar úr ársreikningum fyrirtækja árið áður en þau tóku IFRS upp. Níu kennitölur voru reiknaðar úr reikningsskilum sem gerð voru í samræmi við ársreikningalög og IFRS. Niðurstöðurnar bentu til að upptaka IFRS hefði vissulega áhrif á kennitölur en ekki var hægt að sjá neina afgerandi breytingu í hvora átt nema þá helst á arðsemishlutföll sem virtust almennt hækka

Samþykkt: 
  • 1.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22622


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.Sc Arnar Leó Guðnason.pdf792.12 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna