is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22648

Titill: 
  • Samskipti á milli dagvöruverslana og neytenda með gögnum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um samskipti á milli viðskiptavina og dagvöruverslana á Íslandi. Farið er yfir þau markaðstæki sem fyrirtækin eru að nýta til að ná til sinna viðskiptavina og búa yfir þeim möguleika að geta safnað einhverskonar gögnum. Markaðstækin geta verið notuð til að safna persónu- og /eða lýðupplýsingum um viðskiptavini og til að greina mynstur eða frávik í gögnum í þeim tilgangi að lesa í samtöl við neytendur. Sett er fram hvernig fræðin leggja til að markaðstækin séu nýtt og það borið saman við hvernig verslanirnar eru að nýta sér tækin. Í rannsókninni var rætt við stjórnendur Hagkaup, Krónunnar, Fjarðarkaup, 10-11, Iceland og Nettó. Einnig voru tekin viðtöl við hugbúnaðarfyrirtækið Meniga og auglýsingastofuna Pipar/TBWA. Erlendar dagvöruverslanir voru skoðaðar til að athuga hvernig málum varðandi gagnasöfnun er háttað í ljósi þess að smásölurisinn Costco hefur boðað komu sína til landsins.
    Niðurstöður sýna að dagvöruverslanir eru ekki að nýta sér markaðstækin til að lesa í samtal við neytendur. Út frá niðurstöðum var markmið að áætla til um hvort Costco eigi eftir að hafa mikil áhrif á íslenskan markað og telja rannsakendur að koma Costco geti haft mikil áhrif og breytt landslagi markaðarins til muna.

Samþykkt: 
  • 2.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22648


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.Sc. Hildur og Karitas.pdf1.13 MBOpinnPDFSkoða/Opna