Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22692
Lokaverkefni mitt í Hagnýtri menningarmiðlun er tvíþætt.
Annars vegar verklegt en í þeim hluta tók ég að mér að ritstýra vefsíðu áhugamannafélags, breytingaskeidid.is. Ég tók við óvirkum vef með takmörkuðu efni, lagaði hann að þörfum markhópsins og setti inn á hann efni sem ég viðaði að mér með orðræðugreiningu og viðtölum. Ég studdist einnig við helstu grundvallargildi í uppsetningu vefsíðna og miðlun efnis á vef.
Í skriflega hlutanum fjallaði ég um viðurkenndar aðferðir við vefsíðugerð, framsetningu efnis og skipulag. Ég kom líka inn á eigindlegar rannsóknaraðferðir eins og orðræðugreiningu og viðtalstækni. Greinargerðin var þar að auki ítarleg umfjöllun um framkvæmd verklega hlutans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Frá konu til konu.pdf | 1.37 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
hi_kapa_nov14_final.pdf | 161.38 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Titilsíða.pdf | 6.84 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |