is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22724

Titill: 
  • Walkers / Afturgöngur. Heimildamynd um íslenskar afturgöngur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Walkers er heimildamynd sem tekur fyrir þrjár afturgöngur úr íslenskum þjóðsögum. Í myndinni er rætt við þrjá fræðimenn sem ræða bæði það sem sögurnar eiga sameiginlegt hver með annarri og einnig sérkenni þeirra. Þessir draugar skilja ekki við líkama sinn eftir dauða, en það var hefð í íslenskum draugasögum áður en þær urðu fyrir áhrifum frá Evrópu, þar sem draugar voru ósnertanleg fyrirbæri eða andar. Milli þess að fræðimenn fjalla um sögurnar eru brot úr sögum drauganna sýnd, leikin af leikurum sem búsettir eru við heimaslóðir drauganna. Draugarnir sem teknir eru fyrir í myndinni eru Höfðabrekku-Jóka, Hesteyrar-Krita og loðni maðurinn frá Skarði. Sögurnar eru kynntar undir nafni drauganna í myndinni en loðni maðurinn fékk enska titilinn The Hairy Man. Einnig var handrit skrifað að mynd um Stapadrauginn, sem aldrei var kvikmyndað, og auk þess var saga Brennivínsdraugsins tekin upp í stuttmyndarformi. Brennivínsdraugurinn mun fylgja með DVD eintökum af kvikmyndinni sem aukaefni. Ástæða þess að þessar sögur enduðu ekki í lokaafurðinni er vegna þess að þær þóttu fara út fyrir afmarkað rannsóknarefni myndarinnar, það er, íslenskar afturgöngur nýaldar og sérstaða þeirra; hin órjúfanlegu tengsl líkama og sálar.
    Greinargerðin sem fylgir heimildamyndinni fjallar um það hvernig unnið var að rannsóknarefni myndarinnar með það að markmiði að miðla því til áhorfenda. Verkefnið var unnið sem alþjóðlegt ungmennaverkefni og var helsti styrktaraðili Evrópa unga fólksins. Aðrir styrktaraðilar voru Menningarráð Suðurlands og ýmsir einkaaðilar sem styrktu verkefnið með beinum eða óbeinum hætti, margir hverjir gegnum hópfjáröflum á Karolina Fund. Aðstandendur verkefnisins eru Esther Ýr Þorvaldsdóttir, Anna Margrét Hrólfsdóttir, Anton Smári Gunnarsson, Axel Van Der Waal, Bragi Brynjarsson, Clémentine Louison Celeste Dehaynin, Diego Armando Arias-Hernándes, Gunnhildur Helga Katrínardóttir, Logi Ingimarsson, Manon Claire Huguette Petit og Perrine Sophie Charlotte Marie Wanegue.

  • Útdráttur er á ensku

    Walkers is a documentary about three ghosts found in Icelandic books of legends and folklore in modern history (1540-1830). This film was made by an international group of young and upcoming film makers and supported by The Youth in Action Program. Three scholars and academics discuss these ghosts in the film and talk about how they differ from ghosts elsewhere in the universe as well as what makes them unique. The scholar’s main emphasis is on the embodiment of the ghosts, the fact that they do not part with their body after death and walk amongst the living, as their Icelandic name “afturgöngur” (Eng. those who walk again) indicates. This varies from the European ghosts who become untouchable beings or spirits after death.
    The ghosts that appear in the film are Jóka of Höfðabrekka, Krita of Hesteyri and the hairy man from Skarði. Other ghosts which the youth group worked with were The Ghost of Stapi (Icel. Stapadraugurinn) and The Ghost of Brennivín (Icel. Brennivínsdraugurinn). The Ghost of Stapi was never filmed, but The Ghost of Brennivín did get filmed and will be available on a special edition DVD release. These stories did not make the film as they did not meet the criteria for typical Icelandic ghost stories in modern history due to being heavily influenced by the European ghost tradition.
    This essay is a report which accompanies the documentary and it focuses on the implementation of the youth project and the production of the film. The main thesis statement shall answer the question of which methods are appropriate for an international group of young film makers to use in order to disseminate these Icelandic ghost stories from the modern era to the audience of the film. The project’s main supporter was The Youth in Action Program as well as the Cultural Council of Southern Iceland. The film was also crowd funded on the website www.karolinafund.com and numerous individuals supported the production by pre-ordering the film before it had been finalized. The participants of the youth group are: Esther Ýr Þorvaldsdóttir, Anna Margrét Hrólfsdóttir, Anton Smári Gunnarsson, Axel Van Der Waal, Bragi Brynjarsson, Clémentine Louison Celeste Dehaynin, Diego Armando Arias-Hernándes, Gunnhildur Helga Katrínardóttir, Logi Ingimarsson, Manon Claire Huguette Petit and Perrine Sophie Charlotte Marie Wanegue.

Athugasemdir: 
  • Sagnfræði- og heimspekideild hefur gefið leyfi fyrir lokuðum aðgangi að þessari ritgerð til 2135.
Samþykkt: 
  • 7.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22724


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
1.1 WalkersAfturgongur_titilsida.pdf6.49 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
1.2 WalkersAfturgongur_ritgerd.pdf1.77 MBLokaður til...30.09.2135MeginmálPDF
2.1 DVD_Cover.pdf564.54 kBOpinnKápaPDFSkoða/Opna
2.2 Walkers Screenplay.pdf35.16 kBOpinnFylgiskjölPDFSkoða/Opna
2.3 StoryBoards.pdf26.32 MBLokaður til...30.09.2135FylgiskjölPDF

Athugsemd: Ritgerð er læst vegna persónuupplýsinga í texta.