Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22891
Sem hluta af lokaverkefni mínu vann ég bækling ætlaðan foreldrum um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn einelti sem fylgir hér með. Í greinargerð þessari er fjallað um hvað einelti er, birtingarmyndir þess, einkenni og afleiðingar eineltis. Auk þess er fjallað um hvað foreldrar geta gert til að aðstoða börn sín, til dæmis með góðum uppeldisaðferðum og góðum samskiptum innan fjölskyldunnar. Einnig hvað vinátta er mikilvæg og að hún sé alls ekki auðveld fyrir alla. Sumir þurfa aðstoð við að eignast vini og/eða að halda í vini, á meðan aðrir þurfa aðstoð við námið. Hvað sjálfsmynd skiptir miklu máli fyrir alla einstaklinga, því með jákvæðri sjálfsmynd erum við öruggari með okkur í samskiptum við aðra og við höfum meiri trú á eigin getu. Þar sem einelti er gríðalega algengt og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir bæði geranda og þolanda er mikilvægt að allir sem koma að uppvexti barna hafi augun opin og taki markvisst á eineltinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hvað geta foreldrar gert til að fyrirbyggja einelti..pdf | 627.86 kB | Lokaður til...12.06.2030 | Greinargerð | ||
Viðauki 1. Bæklingur fyrir prentútgáfu.pdf | 190.12 kB | Lokaður til...12.06.2030 | Viðauki | ||
Viðauki 2. Bæklingur fyrir netútgáfu.pdf | 189.26 kB | Lokaður til...12.06.2030 | Viðauki |