is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22900

Titill: 
  • Gæðastjórnun ferlar og verklag hjá Útivist
  • Titill er á ensku Quality Management processes and procedures for Útivist
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • „Segja má að gæði séu alltaf góð og þannig sé í raun ekki hægt að tala um góð eða vond gæði, heldur einungis mismikil gæði“ (Vísindavefurinn, 2013).
    Rannsóknarverkefni þetta fjallar um gæði og gæðaumbætur og er tilgangur þess að leita svara við því hvort þörf sé á bættum gæðum hjá Ferðafélaginu Útivist og hvort hægt sé að bæta núverandi verklag í starfsemi félagsins. Viðfangsefnið er núverandi verklag á móttöku gesta ásamt innheimtu á þjónustugjöldum á svæði félagsins í Básum í Þórsmörk og skráningu á gistinóttum til Hagstofu Íslands. Verkefnið er unnið í samvinnu við Útivist. Ferðafélagið Útivist eru félagasamtök sem hafa starfað frá árinu 1975 en tilgangur þeirra er að hvetja fólk til ferðalaga og hollrar útivistar. Í ritgerðinni er sagt frá stefnumótun félagsins og áætlunum þess til ársins 2017. Rannsakandi beitti eigindlegri aðferð við rannsóknina og aflaði gagna með viðtölum. Viðmælendur rannsóknarinnar voru helstu hagsmunaaðilar félagsins; félagsmenn, sjálfboðaliðar og starfsmenn. Fjallað verður um kenningar frumkvöðla gæðastjórnunar ásamt skilgreiningar á gæðum, sagt er frá gæðastjórnunarkerfinu ásamt gæðastjórnunartækjum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hægt sé að nýta fræði gæðastjórnunar, stjórntæki og verkfæri hennar til að bæta ferla og verklag Útivistar. Rannsakandi leggur því fram tillögur til Útivistar að umbótum og bættum gæðum félagsins.
    Lykilorð: Gæði – Gæðastjórnun – Umbætur

Samþykkt: 
  • 15.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22900


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ágústa Gísladóttir.pdf1.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna