Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22942
Markmið þessa verkefnis er að finna út verðmat á verktakafyrirtækinu Þrótti ehf. Til að svara þeirri spurningu aflaði höfundur fræðilegra heimilda á sviði viðskiptafræði sem tengdust verðmatsaðferðum. Tekin voru viðtöl við tvo einstaklinga sem báðir reka sín eigin ráðgjafafyrirtæki og voru þeir spurðir spurninga til að styðja betur við verðmatið á Þrótti ehf.
Farið er stuttlega yfir það um hvað verðmat snýst og af hverju verðmöt eru gerð. Fjallað verður fræðilega um algengustu verðmatsaðferðirnar sem notast er við í dag, en það eru efnahagsreikniaðferðir, kennitölusamanburður og sjóðstreymisgreining. Í framhaldi af því verður farið yfir helstu mistök við verðmat verktakafyrirtækja. Síðan verða skoðuð tengsl efnahagslífsins á landinu við rekstur verktakafyrirtækja.
Í lokin verður svo gert verðmat á verktakafyrirtækinu Þrótti ehf, stuðst verður við tvær aðferðir við verðmatið á Þróttir annars vegar endurmetið eiginfjár og hins vegar sjóðstreymisgreiningu, verður síðan jarðefnanáma sem er í eigu Þróttar ehf skoðuð sérstkalega. Við verðmatið verður stuðst við ársreikninga Þróttar ehf, upplýsingar sem koma fram í viðtölum og upplýsingar úr fræðigreinum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Omar Helgason_Klárt_í_Skil.pdf | 932.7 kB | Lokaður til...24.01.2050 | Heildartexti |