Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2298
Þessi ritgerð er til BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræði og var unnin af Arnari Sigurgeirssyni og Birnu Björk Sigurgeirsdóttur á vormisseri 2009. Gerð var eigindleg rannsókn sem var ætlað að svara rannsóknarspurningunni “Hvernig læra tónlistarmenn tónlist?” Tekin voru sjö opin viðtöl við sjö tónlistarmenn sem hafa náð langt á sínu sviði. Helstu niðurstöður eru þær að margar leiðir séu til, til að læra tónlist og þeim er skipt í tvo flokka, hefðbundið og óhefðbundið tónlistarnám. Hefðbundið tónlistarnám byggist að miklu leyti á nótnalestri og formlegum æfingum, en óhefðbundið nám byggist að miklu leyti á herminámi og óformlegum æfingum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
baritgerdheild_fixed.pdf | 550.63 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |