is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23024

Titill: 
  • Áhrif Stig II þjálfunar eftir kransæðaaðgerð eða annað inngrip
  • Titill er á ensku Effect of cardiac rehabilitation following cardiac surgery or other coronary interventions
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hjartaendurhæfing er viðurkennd meðferð hjá sjúklingum með kransæðasjúkdóma en takmarkaðar upplýsingar eru til um hana á Íslandi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort hjartaendurhæfing í HL Stöðinni eftir kransæðahjáveituaðgerð eða kransæðavíkkun með eða án stoðnetsísetningu skilaði mælanlegum gildum á bættri líkamlegri heilsu og betri lífsgæðum til sjúklinga.
    Einstaklingum sem komu til þjálfunar í HL Stöðinni var boðin þátttaka í rannsókninni. Samtals hófu 64 rannsóknina en 48 luku henni. Mælingar sem gerðar voru: þrektala (w/kg líkamsþyngdar), blóðþrýstingssvörun (max/min slagbils- og þanbilsþrýstingur) og púlssvörun (max/min púls) úr áreynsluprófi og líkamsþyngdarstuðull (kg/m2). Til að meta heilsutengd lífsgæði var notaður SF-36v2 lífsgæðakvarðinn.
    Helstu niðurstöður sýndu að þrek batnaði um 14,4% (p<0,001) og 6,1% aukning varð á hámarksvinnugetu (hæsta púlsgildi sjúklings á þolprófi) (p=0,001). Þegar hópnum var skipt upp eftir aldri (32-64 ára og 65-86 ára) bættu báðir aldurshópar sig svipað í þreki (14,6% og 14,1%) en það er eingöngu eldri hópurinn sem eykur hámarksvinnugetu marktækt eða um 7,2% (p=0,007). Þegar hópnum var skipt upp eftir meðalfjölda skipta í þjálfun á viku kom fram 10,1% aukning á þrektölu hjá hópnum sem æfði sjaldnar en 19,8% hjá þeim sem æfði oftar (p<0,001). Þátttakendur mátu líkamlega líðan, mælda með spurningalista um lífsgæði, betri við lok þjálfunar (p=0,003) en ekki andlega líðan (p=0,314). Þegar hópnum var skipt í tvo hópa eftir því hvernig þeir mátu líkamlega líðan í upphafi rannsóknar þá varð marktæk hækkun um 15,1% á líkamlegri líðan hjá þeim sem mátu sig í verri stöðu í upphafi (p=0,002), en hinn hópurinn hækkaði um 1,2%.
    Ályktun: Hjartaendurhæfing bætir þrek og líkamlega vellíðan. Magn þjálfunar hefur áhrif á bætingu í þreki.

  • Útdráttur er á ensku

    Cardiac rehabilitation is a well established treatment for patients with coronary artery disease but limited information is available for Icelandic patients. The aim of this study was to investigate if cardiac rehabiliation at the HL rehabilitation center was improving physical health and quality of life of patients.
    Individuals that came for cardiac rehabilitation were invited to participate. There were 64 that started in the study and 48 that finished it. Measurements performed were: fitness performance (watts at peak exercise/kg body weight), blood pressure and heart rate responses from an exercise test and body mass index (kg/m2). To measure health related quality of life the SF-36v2 questionnaire was used.
    The main results showed that the fitness performance improved by 14.4% (p<0.001) and a 6.1% increase was seen in peak heart rate (p=0.001). The group was divided by age (32-64 years and 65-86 years) and both age groups improved fitness performance similarly (14.6% and 14.1%) but only the older age group improved peak heart rate significantly or 7.2% (p=0.007). When the group was divided according to number of training sessions per week there was a 10.1% increase in fitness performance in the group that had fewer sessions but it was 19.8% in those that attended more sessions (p<0.001). Participants assessed that their physical health, measured with a questionnaire, had improved at the end of training (p=0.003). When the group was divided into two groups, according to how they measured their physical health at the beginning of the study, there was a significant increase of 15.1% in physical health in those that estimated worse quality of life at the beginning of the study, but the other group had an increase of 1.2%.
    Conclusion: Cardiac rehabilitation improves fitness performance and physical wellbeing in patients. Training magnitude is essential for improvement.

Samþykkt: 
  • 24.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23024


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MSRitgerðFríðaLokaeintak.pdf1.38 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna