Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2305
Áfengi og önnur vímuefni hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og ýmist talið gleðigjafi eða bölvaldur. Almennt er talið að atvinnulíf og misnotkun áfengis- og annarra vímuefna fari ekki saman þar sem afleiðingar af misnotkun hefur víðtæk neikvæð áhrif. Löggjafinn hefur sett ákveðinn lagaramma til verndar atvinnulífinu, einstaklingum og samfélaginu í heild. Einnig hafa verið þróaðar ýmsar reglur, skráðar og óskráðar til að takast á við vandamálið sem misnotkun ýmissa vímuefna ber með sér. Með auknu umfangi áfengis- og annarra vímuefna hefur stefna um lyfjapróf verið innleidd svo halda megi fyritækjum hreinum af vímuefnum, einkum þar sem störf snúast um öryggi og almannaheill.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ttir_fixed.pdf | 350.82 kB | Lokaður | Heildartexti |