Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23210
Ritgerðin fjallar um rannsókn á tengslum menningarfræðslu og myndmenntarkennslu í íslenskum grunnskólum. Þátttakendur í rannsókninni voru starfandi myndmenntarkennarar á Íslandi.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna þátt menningarfræðslu í myndmenntarkennslu í íslenskum grunnskólum. Rannsóknin var framkvæmd með útskýrandi rannsóknarsniði (e. explanatory research design).
Fyrsti hlutinn byggði á veflægri spurningakönnun sem kannaði framkvæmd menningarfræðslu í íslenskum skólum og skilning kennara á viðfangsefninu. Áhugaverð atriði í spurningakönnuninni voru notuð til að byggja upp atriðalista fyrir fimm hálfopin viðtöl við starfandi myndmenntarkennara sem valdir voru með hentugleikaúrtaki (e. convenience sampling). Viðtölunum var ætlað að dýpka skilning rannsakandans á einstökum þáttum viðfangs-efnisins. Þau voru greind með fyrirbærafræðilegri nálgun þar sem gögnin voru kóðuð og flokkuð í þemu. Niðurstöður rannsóknarinnar voru svo skoðaðar í fræðilegu samhengi og ályktanir dregnar.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar má ráða að myndmenntar-kennarar eru reyndir og vel menntaðir en starfa á ólíkan hátt. Margir þeirra vinna að menningarfræðslu en gera sér ekki allir grein fyrir því þó ótal tækifæri gefist í nærumhverfi þeirra. Stefna stjórnvalda og aðgerðaráætlun um að auka þátt menningarfræðslu í grunnskólum er tiltölulega ný og hefur skilað sér í takmörkuðu mæli inn í skólastarf. Einnig hefur vinnuskipulag kennara hamlandi áhrif. Úr niðurstöðum rannsóknarinnar má einnig greina að stöðnun hefur átt sér stað í myndmenntarkennslu og nauðsynlegt er að endurskipuleggja inntak kennslunnar til þess að gera nám nemendanna og starf kennaranna fjölbreyttara.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð endanlegt eintak.pdf | 1.26 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |