is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23622

Titill: 
  • Land, þjóð og tölva: Hvað þarf til bragðs að taka til að tryggja notagildi íslensku á stafrænni öld?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lögð fram til BA-prófs í íslensku við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.
    Í henni er fjallað um stöðu íslensks máls gagnvart hinum margvíslegu tækninýjungum og reynt að leggja mat á það hvort íslenska eigi á hættu svokallaðan „stafrænan dauðdaga,“ þ.e. að verða ekki áfram gjaldgengt mál í tölvuheimum, á netinu og í snjalltækjum.
    Sérstaklega verður fjallað um máltækni, tæknina við meðferð tungumálsins í tölvum og hugbúnaði, og hvort hún sé komin nógu langt á veg til þess að tryggja framtíð málsins á tölvuöld. Undir máltækni falla meðal annars fyrirbæri á borð við þýðingavélar og talgreinar, sem verða sífellt víðtækari í notkun og þurfa að „kunna” íslensku ef við eigum ekki að þurfa að reiða okkur á önnur tungumál í mun meiri mæli á komandi árum.
    Tiltölulega fámennur hópur fólks hefur unnið mikilvægt grundvallarstarf á sviði íslenskrar máltækni á undanförnum árum og margar spennandi nýjungar eru handan við hornið. Betur má þó ef duga skal og mikla vinnu og fjármuni mun þurfa á næstu árum til þess að tryggja að íslenskan verði ekki skilin eftir þegar önnur tungumál hefja sig upp á hið stafræna svið.

Samþykkt: 
  • 20.1.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23622


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-ritgerð.pdf240.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna