Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23678
Norðurál Grundartanga er að skoða möguleika sína á því að bæta við nýjum búnaði til þess að koma fljótandi áli á fast form í formi barra í stað hleyfa sem þeir framleiða að svo stöddu. Nýji
búnaðurinn þarf kælingu og því þarf að byggja kælikerfi sem getur fullnægt kröfum framleiðanda á kælivatnið.
Markmið verkefnisins er að hanna rafmagnsfræðilegan hluta kælikerfisins samhliða vélrænni hönnun. Afmörkun verkefnisins var að fara yfir hvernig gerð af skynjurum hentar í kerfi sem þetta.
Uppbyggingu og kröfum til stjórnkerfis gerð skil og kerfismynd af stjórnkerfinu búin til ásamt því að ferlar kælikerfisins settir upp í virknilýsingu og í flæðiritum. Aðferðum til að
finna mögnunarstuðla regla verður gerð skil ásamt því að einstakir hlutar kælikerfisins verða settir upp í líkan til þess að leggja mat á mögnunarstuðla regla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc_RT_Lokaverkefni_Orri_Jonsson.pdf | 2.58 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |