Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23718
„Koma tímar koma ráð: Hugmyndir um framtíðarhlutverk félagsheimilanna í Húnaþingi vestra“ er rannsóknarverkefni sem snýst um að safna hugmyndum og skoða möguleika varðandi notkun á félagsheimilunum í Húnaþingi vestra. Tilgangur rannsóknarinnar er að draga fram hugmyndir sem stuðla að betri nýtingu og/eða breyttu hlutverki félagsheimilanna. Rannsóknarspurningarnar eru tvær. Í fyrsta lagi: hvernig er hægt að nýta félagsheimilin í Húnaþingi vestra betur og hvert er mögulegt framtíðarhlutverk þeirra? Í öðru lagi: er nauðsynlegt að endurhanna tilgang félagsheimilanna í Húnaþingi vestra í ljósi breyttra tíma?
Rannsóknaraðferðin sem var höfð að leiðarljósi við gerð þessa verkefnis er afsprengi eigindlegra rannsóknaraðferða félagsvísinda og ákveðinna eiginleika listrænna starfshátta (e. artistic practice), í rannsóknarferlinu er fléttað saman ritgerð og aðferðum lista í hugmyndavinnu.
Helstu niðurstöður eru að í ljósi breyttra tíma þurfi að endurskilgreina hlutverk og móta sameiginlega stefnu fyrir félagsheimilin í Húnaþingi vestra og að það þurfi einhvern drífandi og sterkan aðila til að stýra húsunum og að það hafist tæplega í sjálfboðastarfi. Í niðurstöðum eru svo einnig dregnar upp myndir af mögulegu framtíðarhlutverki félagsheimilanna.
Lykilorð: Listrannsóknir, hugmyndavinna, félagsheimili, Húnaþing vestra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA_lokaverkefni_Audur_Arna_Oddgeirsdottir_2016.pdf | 5.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfunda/r hverju sinni.