is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2375

Titill: 
  • Calcitonin gene-related peptide 8-37 sem meðferð við psoriasis: Mat á stöðugleika og leit að hentugu lyfjaformi
  • Titill er á ensku Calcitonin gene-related peptide 8-37 as treatment against psoriasis: Evaluation of stability and search for suitable dosage form
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Sjúkdómurinn psoriasis á sér langa sögu og hefur verið þekktur allt frá upphafi nútíma læknavísinda. Hann lýsir sér sem krónískur, ónæmistengdur húðsjúkdómur og hrjáir um 2-3% íbúa heimsins. Enn sem komið er hefur ekki tekist að finna hentuga og áhrifaríka lyfjameðferð við sjúkdómnum, en aukinn skilningur á sjúkdómsmyndinni hefur fært rannsakendur skrefi nær því takmarki. Sett hefur verið fram ný kenning sem skilur sig nokkuð frá fyrri kenningum um orsakir psoriasis. Megin inntak hennar er að oftjáning á taugapeptíðinu calcitonin gene-related peptide (CGRP) komi af stað hraðri og óreglulegri frumuskiptingu í húðinni og valdi með því móti sjúkdómseinkennunum. Hugmyndir hafa því vaknað um notkun á antagónista peptíðsins, calcitonin gene-related peptide 8-37, sem hugsanlegt meðferðarúrræði. Í þessari rannsókn var stöðugleiki peptíðsins CGRP 8-37 kannaður sem og frásog peptíðsins yfir húð úr mismunandi lyfjaformum.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hægt sé að auka stöðugleika peptíðsins mikið með vali á ákjósanlegum stuðpúða, hjálparleysum eða hjálparefnum. Frásog yfir húð var best þegar peptíðið var leyst upp í blöndu af ethanóli og vatni. Mismunandi gerðir af lípósómum voru einnig prófuð með tilliti til stöðugleika og frásogs peptíðsins. Slík lyfjaform reyndust ekki vera eins áhrifarík og vatns-ethanól lausn. Með þessari rannsókn er eitt skref tekið í áttina að nýju og hentugu lyfi við psoriasis.

Samþykkt: 
  • 30.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2375


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistararitgerd_fixed.pdf4.74 MBLokaðurHeildartextiPDF