is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23760

Titill: 
  • Móttaka og þjálfun ofngæslumanna hjá Elkem Ísland
  • Titill er á ensku Recruits and training of furnace supervisor in Elkem Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um rannsókn sem gerð var um móttöku og þjálfun nýliða í ofngæslu hjá Elkem Ísland. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig fyrirtækið stæði að þessum þáttum út frá fræðunum og öðrum rannsóknum hvað þetta varðar. Spurningakönnun var lögð fyrir starfsmennina og henni skipt í þrjá þætti: Fyrst var spurt um móttöku starfsmanns, næst var spurt um þjálfunarferlið og síðast um afleiðingar móttöku og þjálfunar á starfsgetu og líðan í starfi.
    Rannsóknarspurningin var eftirfarandi:
    Hvernig er staðið að móttöku og þjálfun ofngæslumanna hjá Elkem Ísland?
    Við gerð rannsóknarinnar var notast við eigindlega aðferð í formi viðtala við tvo stjórnendur en til stuðnings var notast við megindlega aðferð í formi spurningakönnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrirtækið starfar eftir fræðum mannauðsstjórnunar hvað varðar móttöku og þjálfun. Meirihluti þátttakenda var ánægður með ferlið og þá sem að því komu. Ánægjan var mest hjá þeim sem töldu þjálfunarferlið vera vel skipulagt. Þá gáfu niðurstöður vísbendingu um að starfsmenn vilji hafa aðeins einn aðila sem sjái um þjálfun nýliða.

  • Útdráttur er á ensku

    This assignment discusses a research done on recruit reception and training for furnace supervising in the ferrosilicon plant Elkem Iceland. The study aims to analyze the company´s procedures regarding recruits compared to studies and other researches on the matter. A threefold questionnaire was administered to employees: First question on recruit reception procedure, second on training procedure and third about effects reception and training has on work conditions.
    The research question is as follows:
    How are furnace supervisor recruits received and trained in the ferrosilicon plant Elkem Iceland?
    Research procedures used in the study were in the form of qualitative interviews conducted with two executives and quantitative data that was gathered in the form of a questionnaire for support. Results demonstrate that the company operates according to studies of human resource management in regards of reception and training and that majority of participants are satisfied with the procedures and managing. Findings also demonstrate a higher satisfactory amongst participants who believe the training process to be well organized and that participants prefer the process of receiving and training recruits to be in the hands of one person.

Samþykkt: 
  • 12.2.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23760


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heildartexti.pdf1.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Ritgerðin var lokuð í tvö ár að ósk höfundar vegna samnings um trúnað við fyrirtækið sem fjallað er um.