Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24382
Heimspekingurinn René Descartes (1596-1650) skipti heiminum í tvennt og sagði rúmtakið vera eðlisólíkt hugsuninni. Tvíhyggja í anda Descartes felur í sér mannskilning sem skipar hugsun ofar líkamanum í stigveldi. Í anda kenninga Descartes voru rökhugsun og frjáls vilji talin einkenna mennskuna og litaði það einnig mannlega sýn á efnisheiminn sem var álitinn vélrænn og óvirkur og einungis lúta náttúrulögmálum. Heimspekingurinn Baruch Spinoza (1632-1677) sagði hins vegar alla hluti tilheyra einu og sömu frumverunni og gerði þar ekki greinarmun á anda og efni. Kenningar hans fela í sér nauðhyggju þar sem allt gerist í samræmi við eðli frumverunnar, sem einnig gengur undir nöfnunum Guð eða náttúran. Einhyggja hans felur í sér annars konar sýn á orsakasamhengi náttúrunnar og er mannlegur veruleiki þar ekki undanskilinn. Í ritgerðinni er Siðfræðin eftir Spinoza í forgrunni en hún kom fyrst út 1677 í Hollandi. Í fyrsta hluta eru hugmyndir hans um heildrænt kerfi verunnar útskýrðar og frumspeki hans sett í samhengi við siðfræðikenningar hans. Í öðrum hluta ritgerðarinnar er fjallað um framlag Spinoza í samtímaheimspeki. Þá er fjallað stuttlega um spinozísk áhrif á kenningar marxískra póststrúktúralista á 7. og 8. áratugnum og í því samhengi eru kenningar Spinoza bornar saman við kenningar þýska heimspekingsins G.W.F. Hegel (1770-1831). Að lokum eru kynntar nýlegar kenningar innan pósthúmanisma og femínisma sem sækja innblástur sinn að einhverju leyti í heimspeki Spinoza. Verufræði Spinoza ögrar viðteknum hugmyndum um mennskuna og hafa m.a. ýmsir femínistar, umhverfissinnar, eftirlendufræðingar, nýefnishyggjusinnar og pósthúmanistar tileinkað sér hana í kenningum sínum við að fjalla um og reyna að leysa vandamál nútímans. Spinozísk sýn á efni og eðli verunnar gefur möguleika á annars konar leiðum til að nálgast spurningar um mennskuna og stöðu hennar í náttúrunni, sem og um einstaklinginn í samfélagi við aðra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ágrip_katrin.pdf | 7.94 kB | Opinn | Ágrip | Skoða/Opna | |
BA_Katrin_Lokaútgáfa.pdf | 673 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
titilsida_katrin.pdf | 6.53 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_Katrín.pdf | 297.56 kB | Lokaður | Yfirlýsing |