is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2440

Titill: 
  • Listin og Guð. Hvernig viðhorf Sámals Joensen Mikines til trúarinnar höfðu áhrif á myndval hans og efnistök
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð mun ég fjalla um færeyska málarann Sámal Joensen Mikines, sem
    fæddist árið 1906 á eyjunni Mykines í Færeyjum. Ég mun leitast við að útskýra
    hvernig trúarleg viðhorf Sámals Joensen Mikines birtast í verkum hans og hvernig
    þau hafa áhrif á myndval hans og efnistök.
    Umfjöllun mín skiptist niður í fimm kafla sem koma á eftir inngangi. Fyrsti kaflinn
    fjallar um trúmál í Færeyjum á þeim tíma sem Mikines var að alast upp. Ég mun
    draga upp mynd af því trúarlega andrúmslofti sem þá ríkti til þess að gera grein fyrir
    því hversu mikilvæg og sífellt nálæg trúin var Færeyingum á þessum tíma. Síðan
    koma fjórir kaflar sem hver um sig fjallar um nokkur verk á listferli Sámals Joensen
    Mikines, flokkuð niður eftir myndefni. Í upphafi hvers kafla er stutt kynning, eða
    inngangur að hverjum flokki fyrir sig. Annar kaflinn fjallar um dimma tímabilið svo
    kallaða sem á rætur sínar að rekja til áranna um og eftir 1930 þegar hann var að klára
    nám í Akademíunni í Kaupmannahöfn. Þriðji kaflinn er helgaður umfjöllun á verkum
    hans sem eiga beina tengingu við Biblíuna, biblíutengd þemu í verkum Mikines. Í
    fjórða kaflanum skoða ég nokkur verk í flokki mynda sem hægt er að kalla
    sólarmyndir, sem hann málaði upp úr miðri 20. öldinni þar á meðal af þorpinu
    Mykines þar sem hann ólst upp og ber saman verk úr umfjöllun minni í 3. kafla og 4.
    kafla. Í fimmta kaflanum skoða ég grindardrápsverkin en þau fékkst hann við næstum allan sinn listferil að einhverju leyti.
    Trúin er og hefur alltaf verið sterk hjá Færeyingum og trúarviðhorf Sámal Joensen
    Mikines hefur nokkrar mismunandi birtingarmyndir í verkum hans og birtast þau
    meðal annars í myndvali og efnistökum.

Samþykkt: 
  • 5.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2440


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pdf_fixed.pdf17.87 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna