is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24904

Titill: 
  • Líkindi karlmennsku og efnishyggju. Tengsl kynhlutverka við neyslusamfélög
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Efnishyggja og karlmennska virðast að mörgu leyti vera lík hugtök. Flokkun kynhlutverka í karlmannleg og kvenleg hlutverk svipar mjög til flokkunar markmiða í innri og ytri markmið. Ytri markmið fela meðal annars í sér efnishyggin gildi en mörg þeirra gilda sem einkenna efnishyggju líkjast eiginleikum sem einkenna karlmennsku. Af sama skapi virðast vera líkindi á milli kvenlegra eiginleika og óefnishygginna innri gilda. Spurningalisti sem innihélt mælingar á efnishyggju, karlmennsku, kvenleika og lífsánægju var lagður fyrir 165 þátttakendur sem allir voru karlkyns. Rannsóknin leiddi í ljós jákvæð tengsl milli karlmennsku og efnishyggju sem var í takt við væntingar rannsakenda en engin tengsl kvenleika við efnishyggju fundust sem var þvert á væntingar þeirra. Í samræmi við fyrri rannsóknir fundust jákvæð tengsl milli karlmennsku og lífsánægju sem og engin tengsl milli kvenleika og lífsánægju. Þá fundust engin tengsl milli efnishyggju og lífsánægju sem er ekki í takt við niðurstöður fyrri rannsókna. Niðurstöður verða hér ræddar í samhengi við vestrænt nútímasamfélag þar sem einstaklingshyggja, karlmennska og efnishyggin gildi eru talin ríkjandi.

Samþykkt: 
  • 3.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24904


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HI kápa.pdf161.05 kBOpinnKápaPDFSkoða/Opna
BS-ritgerð.-01.06-lok-1(2).pdf647.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_Ólafur_Sigmar_Sigvaldi.pdf330.35 kBLokaðurYfirlýsingPDF