Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24905
Rannsóknir á heilabylgjum og starfsemi hjarta hafa skipað æ stærri sess með aukinni tækni. Rannsóknir á hugleiðslu og slökun hafa verið stundaðar með raflífeðlisfræðilegum aðferðum hátt á fimmta áratug. Í þessari rannsókn eru notaðar lífeðlislegar mæliaðferðir til að skoða áhrif hugleiðslu á heilastarf og starfsemi hjarta með sérstöku tilliti til starfsemi ósjálfráða taugakerfisins. Þátttakendur voru 18 talsins, 6 konur og 12 karlar. Aldur þeirra var 27 til 41 árs. Meðalaldur var 32,9 ára (sf= 3.9). Rannsóknarspurningar voru hvort hugleiðsla og sérhæfð hugleiðsluiðkun Yudhistara pranayam hefðu áhrif á mælingu heilabylgna eða breytileika i hjartslætti? Einnig var spurt hvort ósjálfráða taugakerfið virkjaðist við hugleiðslu eða Yudhistara pranayam? Ef svo þá hvernig og hvar? Mælingum var safnað með rafritsmælingum utan á höfuðkúpu og rafritsmælingum yfir hjarta. Niðurstöður leiddu í ljós marktækan mun á líkamsstarfsemi sem benti til einbeitingar og aukins hugarstarfs við hugleiðsluna, ásamt virkjunar á ósjálfráða taugakerfinu við hugleiðslu en þó sérstaklega við Yudhistara pranayam. Rannsóknarspurningum var því svarað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bs ritgerð Guðmundur Helgi Svavarsson .pdf | 1.25 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
kápa.pdf | 1.32 MB | Opinn | Kápa | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_Guðmundur.pdf | 314.67 kB | Lokaður | Yfirlýsing |