is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24949

Titill: 
  • Tækifæri í kringum skemmtiferðaskip í Reykjavíkurhöfn : möguleikar á nýrri þjónustu fyrir ferðamenn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður leitast við að skoða hvaða frekari tækifæri felast í kringum komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur.
    Komum skemmtiferðaskipa til Íslands hefur fjölgað mikið undanfarin ár og farþegafjöldi aukist í takt við það. Ferðaþjónustufyrirtæki og íslenskar hafnir njóta góðs af því en þau fyrirtæki sem standa fremst þar eru sameinuð undir hatti Cruise Iceland.
    Sérstaklega var horft til byrgja eins og TVG-Zimsen á Íslandi og dótturfyrirtæki þess Gáru en þau tvö félög sjá um skemmtiferðaskipin í Reykjavíkurhöfn. Viðtöl voru tekin við framkvæmdastjóra fyrirtækjanna til að fá betri innsýn í framtíðarplön þeirra og þá þjónustu sem þegar er í boði.
    Notast var við PESTEL greiningu sem greinir hag-félagslegar aðstæður og SVÓT greiningu sem metur annars vegar styrkleika og veikleika og hins vegar tækifæri og ógnanir fyrirtækis í þjónustu við skipin.
    Tækifæri felast í aukinni þjónustu t.d. pakkaferðum, fjölbreyttari afþreyingu og betra skipulagi. Ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum hafa að jafnaði ekki meira en 8 – 10 klukkustundir í landi og því skiptir hver mínúta máli. Einnig þarf að auka vöruúrval íslenskra afurða bæði til skipanna sjálfra og ferðamanna. Skoðaður er möguleiki þess að opna fríhöfn og metið hvort þörf sé á því þar sem tollfrjáls varningur er um borð í skipinu þegar það er á siglingu.

  • Útdráttur er á ensku

    This essay will investigate business opportunities around cruise liners that dock in Reykjavík, Iceland. There has been a drastic increase in the number of cruise liners making their way to Iceland in recent years. Icelandic tourism companies and the docks handling the ships have benefitted the most from this growth, in particular those that have combined under the logo of “Cruise Iceland”. The essay will specifically look to wholesale suppliers such as TVGZimsen and its subsidiary company Gára, which handle cruise liners that dock in Reykjavík to gain better insight into their current operation and future plans by interviewing their executive managers. A PESTEL analysis was performed to understand the socioeconomic environment in which cruise services operate and a Swot analysis was carried out to estimate strengths and weaknesses on the one hand and opportunities and threats on the other to the companies in question. The essay concludes that opportunities lie in increased service to cruise liners with for example tailored package deals, more diverse entertainment and more detailed structure of services. Tourist that arrive on cruise liners generally only stay around 8-10 hours on land, so every minute counts. There is a need to increase the selection of Icelandic produce sold to the ships and to the tourists themselves. The option of a duty-free store specifically for cruise line guest might
    be something that merits investigation, as duty-free merchandise is sold aboard the ships while they sail.

Samþykkt: 
  • 6.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24949


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð skil 25.04.2016 - Björk Pálsdóttir.pdf2.77 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna