is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25051

Titill: 
  • Vöxtur kyrrahafsostru, (Crassostrea gigas) í ræktun : áhrif hitastigs og fæðumagns
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta fjallar um vöxt kyrrahafsostru (Crassostrea gigas) í ræktun og er unnið í samstarfi við fyrirtækið Víkurskel ehf. Víkurskel hefur stundað kræklingarækt í nokkur ár í Skjálfandaflóa og fékk árið 2013 leyfi til að hefja tilraunir á ostruræktun. Kyrrahafsostrur eru hlýsjávardýr og í sjó við kjöraðstæður getur það tekið 2-3 ár að rækta hana upp í neyslustærð 12-15 cm. Sjórinn við Ísland er hreinn og ríkur af næringarefnum en hann er kaldur og fer ostran því í vaxtarstopp yfir vetratímann. Megin markmið þessarar rannsóknar er að auka þekkingu á tegundinni og kanna hvort mismunandi hitastig (15°C, 21-22°C og 30°C), stöðug lýsing og mismunandi magn og tegund fóðurs hafi áhrif á vöxt dýranna.
    Helstu niðurstöður tilraunarinnar sýna að ekki fékkst aukinn vöxtur kyrrahafsostru með hækkun ræktunarhitastigs og stöðuga lýsingu. Enginn ostra dó þó á tilraunatímabilinu sem voru tveir mánuðir og styður það niðurstöður fyrri rannsókna sem sýna að tegundin hefur breitt hitastigsþol. Fóðurmagn virtist ekki skipta máli hvað varðar vöxt dýranna við stöðuga lýsingu en þörungavöxtur í ræktunum var misjafn eftir hitastigum. Margir þættir hvað varða ræktun ostru í landi eru enn óljósir og væri því mjög áhugavert að halda tilraunum áfram til að finna út hvaða þættir geti mögulega stuðlað að auknum vexti dýranna.
    Lykilorð: Kyrrahafsostra, vöxtur, fæða, hitastig

  • Útdráttur er á ensku

    This project focuses on the growth of the Pacific oyster (Crassostrea gigas) in farming/cultivation and was carried out in cooperation with the company Víkurskel ehf. Víkurskel has engaged in mussel industry for several years in Skjálfandaflóa and in 2013 they received license to import oysters and carry out an experimental cultivation in Skjálfandaflói. Pacific oysters are warm water animals and in the sea under optimal conditions, it can take 2-3 years to grow them up in market size 12-15 cm. The sea around Iceland is clean and rich in nutrients, but the low environmental temperatures cause an arrest of growth over the winter time. The main objective of this study was to increase knowledge of the species and determine whether different temperatures (15°C, 21-22°C and 30°C) and varying amounts and types of feed affected the growth of the oysters under constant light regimes.
    The main results indicate that the growth of the Pacific oyster was not enhanced with increased temperature and constant light regimes. None of the oysters died during the experimental period of two months, supporting previous findings suggesting wide resistance to elevated temperatures. The amount of feed did not seem to affect the animal’s growth at constant light regimes but different algae growth was observed at different temperatures. Many aspects regarding optimal culture conditions for land based cultivation of oysters still remain to be determined and it would be very interesting to continue the work to identify factors that enhance the growth of the animal.

    Keywords: Pacific oyster, growth, feed, temperature

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 11.4.2019.
Samþykkt: 
  • 7.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25051


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vöxtur kyrrahafsostru_ÞórhildurSigurðardóttir.pdf1.16 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna