is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25143

Titill: 
  • Tæknifrjóvganir á Íslandi
  • Titill er á ensku Assisted reproduction technologies in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Megintilgangurinn með þessu verkefni var að skoða hvernig verðlagning á tæknifrjóvgunum hefði verið á árunum 2005 til 2015 og hvernig hún hefði verið að fylgja vísitöluþróun á tímabilinu, einnig var tilgangurinn að skoða hver væru tengsl tæknifrjóvgunar á Íslandi við tæknifrjóvgun í nágrannalöndunum, til dæmis með tilliti til verðlagningar, tækjabúnaðar, meðferðarmöguleika og svo framvegis. Skoðaðar voru rannsóknir sem gerðar hafa verið um verðlagningu tæknifrjóvgunarmeðferða í löndunum í kringum okkur, tekin voru viðtöl við talsmenn annars vegar Tilveru, hagsmunasamtaka þeirra sem glíma við ófrjósemi og hins vegar við talsmann IVF-klíníkarinnar Reykjavík sem opnaði í febrúar 2016. Gjaldská Art Medica fyrir tímabilið 2005 til 2015 var skoðuð og borin saman við útreikninga hver verðin hefðu verið hefðu þau fylgt vísitölu neysluverðs, einnig var skoðað hvaða meðferðir væru í boði í nágrannalöndunum og hvað þessar meðferðir væru að kosta og borið saman við verð fyrir tæknifrjóvganir á Íslandi árið 2016. Helstu niðurstöður eru þær að verð fyrir tæknifrjóvganir fylgdi ekki vísitölu neysluverðs á árunum 2005 til 2015, kostnaður vegna glasafrjóvgunar og smásjárfróvgunar var lægri en hefði verðið fylgt vísitölu en kostnaður vegna uppsetningu á frystum fósturvísum og tæknisæðingu var hærri en hefðu verð fylgt vísitölu. Hvað varðar meðferðarmöguleika þá hafa svipaðar meðferðir verið í boði á Íslandi og erlendis undanfarin ár en IVF-klíníkin Reykjavík mun bjóða uppá ný tæki og nýrri tækni en verið hefur hér á landi undanfarin ár, hvað verðlagningu árið 2016 varðar þá eru tæknifrjóvgunarmeðferðir ódýrari á Íslandi en í nágrannalöndunum.

  • Útdráttur er á ensku

    The main purpose of this project was to examine the pricing of assisted reproduction technologies between the years 2005 and 2015 and how it had been following the development of consumer price index in that period. The project also aimed to examine what would be the relationship of assisted reproduction technologies in Iceland to assisted reproduction technologies in neighboring countries, for example in terms of pricing, equipment, treatment options and so on. Studies that have been made on pricing of fertilization treatments in the neighboring countries were examined, interviews done with advocates of Tilvera, association of those who struggle with infertility on one hand and secondly with the spokesman of IVF-klíníkin Reykjavík which opened in February 2016. Tariff of Art Medica for the period from 2005 to 2015 was examined and compared with calculations of what prices would have been if they had followed the consumer price index, it was also looked into what treatments were available in neighboring countries and what these treatments would cost compared to the cost for assisted reproduction technologies in Iceland in 2016. The results showed that the rates for assisted reproduction technologies did not follow the consumer price index between 2005 and 2015, the cost of in vitro fertilization (IVF) and Intracytoplasmic Sperm Injection (ICSI) was lower than it would have been had it followed the price index but the cost of installation of frozen embryos and artificial insemination was higher than the price would have been had it followed the price index. In terms of treatment options, similar treatments have been available in Iceland as in the neighboring countries in recent years and IVF-klíníkin Reykjavik will offer new tools and new technologies compared to the last few years. Where pricing in 2016 is concerned, assisted reproduction technology treatments are cheaper in Iceland compared to the neighboring countries.

Samþykkt: 
  • 10.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25143


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HildurRafnsdottir_BS_lokaverk..pdf1.68 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfunda/r hverju sinni.