is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25212

Titill: 
  • Borð, stólar, börn og belja : minningar um farskóla í Skagafirði á 20. öld
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er meistaraprófsverkefni til M.Ed-prófs í menntunarfræði við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni rannsóknarinnar er farskólahald í Skagafirði á 20. öld, en farskóli var það menntakerfi sem var ráðandi í dreifbýli á fyrri hluta 20. aldar, sérstaklega á þeim svæðum sem samgöngur voru erfiðar og börn höfðu ekki tök á að ganga í fasta barnaskóla. Í farskólum fóru nemendur og kennari á milli bæja innan hreppa og dvöldu þar á meðan kennsla fór fram, en misjafnt var hversu lengi farskólinn hélt til á hverjum bæ.
    Rannsóknin byggir m.a. á viðtölum við átta viðmælendur sem allir gengu í farskóla í Skagafirði. Markmið rannsóknarinnar er að taka saman og setja í samhengi minningar um farskólagöngu, en þær frásagnir eru ómetanlegar heimildir um umhverfi og aðbúnað í farskólunum. Tiltölulega lítið hefur verið skrifað um þetta efni og brýnt að bæta úr því, þar sem fyrrum nemendum farskólanna fækkar ört. Frásagnir heimildarmanna benda til að þó að kennsla hafi víðast verið með svipuðu sniði voru kennslu- og dvalaraðstæður með ýmsu móti. Farskólagangan virðist alla jafnan hafa verið mjög glaðlegur tími og viðmælendur búa yfir góðum minningum frá bernskuárunum. Á því tímabili sem viðmælendur gengu í farskóla, þ.e. á árunum 1938–1976 virðast fáar breytingar hafa átt sér stað þegar kemur að rekstri farskólanna í Skagafirði. Kennsluaðstæður fóru þó að einhverju leyti batnandi með breyttum húsakynnum og tækninýjungum.

  • Útdráttur er á ensku

    This study is a final assignment for a M.Ed degree in Education from the
    University of Akureyri. The topic of the thesis is a school system that was dominant in rural Iceland in the first half of the 20th century. The school, which was called „mobile-school“, would move from one farm to another and students would gather there for a certain period of time for instruction. Often the schoolchildren would stay at one farm for two weeks, then return home for two weeks etc. The school would go between those farms which had enough space to house the operation and provide shelter for the teacher and children for an agreed upon time.
    The study was built on eight interviews with individuals who went to a
    „mobile-school“ in Skagafjörður, a province in the north of Iceland. The goal of the study was to collect childhood memories and narratives of this peculiar school system. Little has been written, when it comes to personal experiences and memories about this subject, yet it is important to do so, as the narrators are getting fewer as time goes by. The main results of the study show that the official management of the schools was similar regardless of area, but the housing and facilities varied from farm to farm. Most individuals who participated in the study had a good educational experience and warm memories regarding this time in their life. During the period when the narrators went to school in Skagafjörður, from 1938 to 1976, “mobile schools” stayed mostly the same, in regards to daily organisation and execution. The teaching
    facilities improved over the years with different house building options and technological innovations.

Samþykkt: 
  • 14.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25212


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Borð,stólar,börnogbelja_IngaKatrínDMagnúsdóttir_MPR0230_M.Ed-ritgerð.pdf1.79 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna